2000 Burðardýr: Kosningasvindl og fikt

frettinHallur Hallsson, Pistlar1 Comment

Við höfum sett saman, að ég held víðtækasta og flóknasta kerfi kosningasvika í sögu bandarískra stjórnmála.   - Joe Biden 24. október 2020

Sveitarstjórnarkosningarnar fóru vel fram en margir furðuðu sig á hinni löngu bið eftir fyrstu tölum úr Reykjavík sem bárust um fjórum tímum eftir lok kjörfundar. Frjálsar og gagnsæjar kosningar eru mótor frelsis og lýðræðis. Meinbugir á talningu í Borgarnesi í alþingiskosningunum í fyrra voru sjokk fyrir þjóðina og enn er deilt um niðurstöðu rannsóknarnefndar Alþingis.

Alvarlegt atvik varð 2018 þegar Reykjavíkurborg sendi bréf til innflytjenda, konur +80ára og ungs fólks. Gjörningurinn var úrskurðaður brot á persónuverndarlögum. Þetta var kært en vísað frá af ‘kerfinu‘. Kæran sögð hafa borist of seint. Málið var ekki rannsakað frekar. Sáralitlu munaði að Dagur missti jobbið 2018. Auðvitað átti opinber rannsókn að fara fram.

Kosningasvikin afhjúpuð

Af hverju er ég að rifja þetta upp? Jú, því kosningasvindl Demókrata í forsetakosningunum 2020 í Ameríku hefur verið afhjúpað í 90M heimildamynd Dinesh D‘Souza 2.000MULES eða 2.000 burðardýr. Víðtækt net þúsunda burðardýra með traffíkeruð ólögleg atkvæði sett í svokölluð Dropbox; atkvæðakassa í lykil-fylkjum. Myndin er byggð á rannsóknum borgarasamtaka True-to-Vote sem hafa kortlagt svikarana og svikin úr opinberum eftirlitsvélum við Drop-Boxin.


True-to-Vote hafa 4 milljónir mínútna af myndefni, 10 Trilljón farsíma-hljóma sem kortleggja ferðir burðardýranna og rekja til uppruna svikanna. Milljónum póstatkvæða var dælt út vegna covid og burðardýrin fengu greitt pr. atkvæði. Þetta var Organized Crime í boði Demókrata. Tíu dögum fyrir kosningar stærði Biden sig af kosningasvikunum frammi fyrir stuðningsmönnum og bætti við: ‘You guys did it for Obama before.‘ Þessir tveir hafa kveikt elda víða um heim og gera enn.

Biden var svo viss um að hann kæmist upp með svikin að hann gerði það sem satanistar gera jafnan. Hann upplýsti fyrirfram um áformin! Þegar kjörstöðum var lokað langt liðið á kvöld var Trump yfir allt að 10% í Pensylvaníu, Georgíu, Wisconsin, Michigan og Arizona. Klukkan 03:00 að nóttu var talningu hætt, eftirlitsfólk rekið út, gluggar byrgðir, hurðum skellt í lás. Þegar Ameríka vaknaði var Biden kominn yfir og mjakaðist fram úr næstu daga.

Þetta var valdarán, Coup de‘Etat. Frelsi, lýðræði og vestræn siðmenning dóu í nóvember 2020. Davózkir Amerískir falsmiðlar hylmdu yfir með siðblindum valdasjúkum Demókrötum og bergmálið fór um allan heim. Næsta sem gerist er að stríð brýst út í Úkraínu í kjölfar covid. Fólk þarf um annað að hugsa.

Afgreitt sem þvæla

Friðjón R. Friðjónsson ráðgjafi Bjarna Ben og borgarfulltrúi var tíður gestur RÚV þessar vikurnar 2020. Hann þvertók fyrir kosningasvik í Ameríku; ‘þvæla‘ sagði Friðjón. Silja Bára Ómarsdóttir prófessor við Háskóla Íslands tók í sama streng sem og Bogi Ágústsson.

Hvernig væri að RÚV sýndi 2000 Mules og leyfi íslenskri þjóð að dæma? Góður vinur minn með sterka sannleiksvitund telur raunar að fréttamenn RÚV séu sjálfir heilaþvegnir af davózkri falsmiðlun; Reuters, AP, AFP, CNN, NYT, WaPo og rest. Lygin er copy-peistuð og þjóðirnar heilaþvegnar. Áhugaverður punktur. Það er nú svo að Ein-og-Sama-Fréttin fer á Rauntíma um allan hinn vestræna heim. Ríkismiðlar Evrópu kalla það Trusted-News-Initiative sem BBC leiðir fyrir EBU, evrópska ríkismiðla þar á meðal RÚV. Þeir kunna að komast að orði til að fela ásetning. XD hefur engra spurninga spurt.

Atkvæði gamla fólksins

Kosningasvik Demókrata voru afar víðtæk, tugir þúsundir atkvæða úr kirkjugörðum! Brottfluttir í önnur fylki greiddu atkvæði! Útsendarar á hjúkrunarheimilum greiddu atkvæði á nafn aldraðra án vitneskju fjölskyldna; þar á meðal alzheimer veikt fólk. Þetta er grafalvarlegt mál fyrir lýðræðissinna og borgaralega sinnað fólk sem þarf að skoða vandlega hvernig svikin fara fram. Af hverju sendir borgin út bréf til hinna viðkvæmustu; aldraðar 80+konur ... innflytjendur ... ungt fólk? Af hverju fengu gamlir 80+ karlar ekki bréf og sms frá Degi.

Hvernig væri, að sá ágæti maður Friðjón í KOM sem ráðgjafi Sjálfstæðisflokksins sýni þingmönnum og sveitarstjórnarmönnum heimildarmynd D‘Souza. Sjálfstæðismenn taki frumkvæði. Við lifum viðsjárverða tíma, plágur og endalausar styrjaldir. Fólk verður að opna huga og sjá í gegn um áróður falsmiðla ofsaríkra davózista.

WHO fái alræðisvald

Sunnudaginn 22. maí verður 75. þing Alþjóðaheilbrigðisstofunarinnar WHO sett í Genf í Sviss þar sem 194 fulltrúar munu í næstu viku greiða atkvæði um tillögu ríkisstjórnar Biden um afsal þjóðríkja á fullveldi og afhenda WHO alræðisvald í heimsfaraldri. Hefur þjóðin verið spurð? Er það í samræmi við Stjórnarskrá lýðveldisins og Bandaríkjanna, svo bara þau séu nefnd.

Viðvörunarbjöllur klingja, fólk daufheyrist. Rauð ljós blikka, augu lokuð. Það er sótt að frelsi og lýðræði. Hafið þið tekið eftir: Helsi og alræði hinna ofsaríku sækir fram á vakt kvenna sem fylgja senílum bófa sem situr á "Lap-Top from Hell" tölvu sonar síns. Tillögur liggja fyrir í þinginu í Washington um að ákæra Biden til embættismissis vegna vanhæfis. Það veitir veitir mér ekki gleði að vara ykkur við en ég lít á það sem skyldu mína. Það er hverrar kynslóðar að verja frelsið.

Frelsi og lýðræði glatast ef gott fólk þegir.


One Comment on “2000 Burðardýr: Kosningasvindl og fikt”

  1. Mannkynið býr í heimi sem er stjórnað af guðlausu og valdasjúku fólki. Þetta fólk talar um lýðræði en vill bannfæra þá sem hafa ekki sömu klikkuðu og sjúku marxísku hugsjónir að leiðarljósi. Allt er öfugsnúið í hugarheimi hins guðlausa. En því miður er áróðursfréttamaskína þessa fólks mjög öflug.

Skildu eftir skilaboð