Fyrrum leikmaður Swansea hneig niður í miðjum leik og lést

frettinErlentLeave a Comment

Mark Davies, fyrrum knattspyrnumaður Swansea City, hneig niður í leik um helgina og lést 49 ára að aldri.

Fyrrum varnarmaðurinn var að spila með öldungaliði Llanelli Town AFC í bikarúrslitaleik eldri en 45 ára gegn Penybont FC í Cardiff á sunnudaginn þegar hann féll niður.

Neyðaraðstoð var kölluð til en Davies var úrskurðaður látinn á vettvangi.

Hinum vinsæla leikmanni hefur verið lýst af þeim sem hann þekktu sem „algerum heiðursmanni“ og „alvöru fótboltamanni“.

Í tilkynningu sagði Swansea City þetta vera mjög sorglegt.


Skildu eftir skilaboð