Mark Zuckerberg póstar myndum af sér á Íslandi

frettinInnlendarLeave a Comment

Miðað við nýjustu færslu Mark Zuckerberg stofnanda og forstjóra Facebook, þá virðist hann njóta lífsins á Íslandi.

Zuckerberg birti myndir af sér og eiginkonu sinni ásamt fríðu föruneyti og segir hann í færslunni "Photo dump from the Icelandverse". 

Í síðustu viku greindu fjölmiðlar frá því að forstjórinn hefði lent einkaflugvél sinni á Akureyraflugvelli og svo haldið áfram inn í land með þyrlu.

Zuckerberg virðist hafa heillast af auglýsingaherferð á vegum Inspired By Ice­land, en þar lék Jörundur Ragnarson, Zack Moss­bergs­son sem líkist mjög Zuckerberg, þar sem gert var stólpagrín af forstjóranum. Grínið virðist hafa hitt í mark því hann dvelur enn á Íslandi og óvíst hversu lengi hann stoppar.

Færsluna má sjá hér neðar.


Skildu eftir skilaboð