Fyrrum Dallas Cowboy stjarnan Marion Barber látinn – dánarorsök enn ókunn

frettinErlentLeave a Comment

Fyrrum NFL leikmaðurinn Marion Barber III fannst látinn á heimili sínu af lögreglumönnum í Texas.

Barber var leikmaður hjá Dallas Cowboys og Chicago Bears. Hann var 38 ára og hefur dánarorsök ekki verið gefin upp en ekki er talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti.

Líkið, sem verður krufið, fannst í baðherberginu þar sem Barber á að hafa legið í einhverja daga áður en hann fannst, og var sturtan í gangi.


Skildu eftir skilaboð