Þorsteinn Siglaugsson í viðtali hjá Dr. Randall Bock lækni, frumkvöðli og fræðimanni

frettinErlentLeave a Comment

Dr. Randall Bock, læknirfrumkvöðull og fræðimaður í Boston sendir reglulega út viðtöl um mál tengd Covid og hefur meðal annars rætt við Dr. Jay Bhattachariya, Dr. Richard Amerling og Dr. Paul Frijters.

Auk þess að vera gagnrýninn á viðbrögðin við Covid hefur Dr. Bock unnið mjög merkt starf við að greina og afsanna þrálátar ranghugmyndir varðandi Zika-faraldurinn 2015-16. Hann birti nýlega stutta grein um málið í The American Journal of Medicine og í maí síðastliðnum kom út bók hans, Overturning Zika – The Pandemic that Never Was.

Þorsteinn Siglaugsson hagfræðingur og pistlahöfundur hjá Daily Sceptic og Brownstone Institute var í viðtali hjá Dr. Bock í vikunni, þar sem farið var yfir margvísleg efni varðandi Covid, meðal annars viðbrögðin hérlendis, velgengni færeysku leiðarinnar og hið undarlega misræmi milli staðreynda og sannfæringar hjá meginhluta almennings. Þorsteinn hefur einnig skrifað talsvert um þessi mál hérlendis, meðal annars fyrir Fréttina.

Viðtalið má sjá hér. 


Skildu eftir skilaboð