Biden: Selenskí tapaði Úkraínustríðinu

frettinErlent, Pistlar1 Comment

Páll Vilhjálmsson skrifar:

Vesturlönd vita að Úkraína tapar stríðinu við Rússa. Biden Bandaríkjaforseti leggur grunn að frásögninni að tapið sé Selenskí forseta Úkraínu að kenna.

Selenskí er í raun leiksoppur tveggja aðila, vesturlanda annars vegar og hins vegar úkraínskra olígarka. Hann lék forseta í sápuóperu. Þótt leika af innlifun og var gerður að forseta.

Eftir innrás Rússa 24. febrúar varð Selenskí alþjóðleg stórstjarna. Hann var á beinu streymi á ráðstefnum og þjóðþingum um víða veröld, einnig á alþingi Íslendinga. Þetta var á fyrstu vikum stríðsins þegar Úkraína átti að sigra Rússa með vestrænum vopnum. Selenskí var Davíð sem sigraði pútínískan Golíat.

Stöðugar fréttir vestrænna fjölmiðla um stórsigra Úkraínuhers á innrásarliðinu, ásamt breiðsíðum um fjöldamorð Pútínhersins á saklausum borgurum sannfærðu marga um að réttlátur Davíð hefði betur gegn ranglátum Pútín.

Leiktjöldin voru trúverðug en á bakvið þau var Úkraínuher á undanhaldi. Rússar sóttu fram og lögðu undir sig lönd. Vesturlönd áttuðu sig á ekki síðar en í apríl að Úkraína myndi tapa stríðinu. Það þurfti að hanna frásögn til að útskýra fyrir alþjóð niðurlæginguna. Finna blóraböggul.

Drög að nýju handriti eru að Selenskí sé ekki Davíð gegn Golíat heldur breysk hetja, er glímir við veruleikafirringu. Á næstum dögum fáum við fréttir um að Selenskí beri ábyrgð á slæmri herstjórn og gífurlegu mannfalli.

Samhliða nýrri frásögn lætur vestrið eins og það vilji bjarga Úkraínu. Úrsúla von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar heimsótti Kænugarð. Úkraínuforseti sagði að á sléttum Garðaríkis réðist framtíð hins vestræna heims. Úrsúla klappaði forsetanum á bakið og sagði Úkraínu bráðum í ESB. En Úkraína fer aldrei inn í ESB án þess að hafa viðurkennd landamæri. Stórir hlutar landsins eru undir hernámi Rússa.

Fréttir herma að forseti Frakklands, forsætisráðherra og kanslari Þýskalands heimsæki Kænugarð innan skamms. Stórfrétt, ef satt reynist. Mögulega ætlar þríeykið að bjóða Selenskí afarkosti. Að hann semji strax við Rússa, gefi frá sér það land sem þarf til að kaupa frið. Eða að vestrið yfirgefi Úkraínu og kenni Selenskí um að tapa stríðinu.

Vesturlönd hafa ekki lengur efni á stríðinu í Garðaríki. Efnahagskerfi þeirra eru í uppnámi, hrávöruskortur vegna viðskiptaþvingana gera illt verra.

One Comment on “Biden: Selenskí tapaði Úkraínustríðinu”

Skildu eftir skilaboð