Sálfræðingur boðaður í yfirheyrslu vegna „hatursorðræðu“ í greinaskrifum um kynvitund stúlkna

frettinInnlendarLeave a Comment

Arnar Sverrisson sálfræðingur segir frá því á facebook að hann hafi í morgun fengið óvænta hringingu frá lögreglunni.

„Prúður og hálfvandræðalegur lögreglumaður tjáði mér að ég væri boðaður í viðtal vegna hatursorðræðu í tveim greinum, sem ég skrifaði í Vísi fyrir tveim árum síðan um kynskipti. Ég skrifaði reyndar um kynskipti í Morgunblaðið einnig, en kærandi minn, Tanja Vigdisardottir, virðist ekki hafa séð hatursorðræðu í henni,“ segir Arnar.

Það fylgdi sögunni, að lögreglan hefði í fyrstu hafnað rannsókn á kæruefninu, en Ríkislögreglustjóri hafi nú fyrirskipað, að rannsókn skyldi fara fram. „Því er ég boðaður í yfirheyrslu. Athyglisvert!,“ sagði Arnar.

Grein Arnars í Vísi má lesa hér og einnig svargrein Tönju Vigdísardóttur við henni. Andsvar Arnars má svo lesa hér.

Hér neðar má sjá eldra innleg frá kærandanum Tönju:


Skildu eftir skilaboð