Fræga fólkið borgar sig frá bólusetningu

frettinErlent1 Comment

Háttsettur lyfjarisamógull var staðinn að því að falsa bólusettningastöðu sína; sprautaði sig með saltvatni í staðinn…og bíður nú þess að vera ákærður fyrir afbrot

Lögreglan hefur kært Jose Maria Fernandez Sousa-Faro, forseta evrópska lyfjarisans PharmaMar fyrir að hafa falsað bólusetningu sína við Covid-19. Dr. Sousa-Faro er nú flæktur í hneykslismál ásamt fjölda einstaklinga, margir mjög vel þekktar manneskjur, sem hafa nú verið skráðar sem bólusettar hjá National Immunization Registry á Spáni, í skiptum fyrir háar fjárupphæðir. Dr. Sousa-Faro er i hópi meira en 2.200 einstaklinga meðal hinna frægu og evrópskru elítunnar sem eru nú á skrá lögreglu yfir þá sem eru falsbólusettir gegn Covid.

Samkvæmt El Mundo framkvæmdi lögreglan rannsókn undir heitinu “Operation Jenner” sem kom upp um stórt tengslanet meðal fræga fólksins sem hafði greitt háar fjárhæðir til að koma nöfnum sínum á skrá National Immunization Registry á fölskum forsendum, þrátt fyrir að hafa neitað að láta bólusetja sig.

Samkvæmt lögreglunni sem rannsaka nú þessi rúmlega 2.200 fölsuðu Covid-19 bólusetningarvottorð var peningaupphæðin háð félagslegri stöðu. Því mikilvægari sem þú ert, því dýrara er skírteinið.

One Comment on “Fræga fólkið borgar sig frá bólusetningu”

  1. Þetta hafa þau gert hér líka eins og annars staðar, og öllu svo sjónvarpað eins og þau væru e-r hetjur.

Skildu eftir skilaboð