Liu Thomas og fleiri transkonum bannað að keppa í sundi kvenna

frettinErlentLeave a Comment

Alþjóðasundsambandið FINA hefur bannað transkonum að keppa í kvennagreinum en hyggst koma á svokölluðum „opnum flokki“ fyr­ir trans íþrótta­fólk.

Stjórn sambandsins kaus að stöðva það að transkonur kepptu í úrvalskeppni kvenna ef þær hefðu gengið í gegnum einhvern hluta kynþroska karla.

Forseti FINA, Husain Al-Musallam, tilkynnti þetta á sunnudag en um er að ræða nýja reglu­gerð sam­bands­ins.

71% af 152 meðlim­um FINA kusu með reglu­gerðinni, sem er alls 34 blaðsíður og þess er krafist að trans keppendur hafi lokið kynskiptum sínum fyrir 12 ára aldur til að geta keppt í kvennaflokki.

„Þá erum við ekki segja að fólk sé hvatt til að skipta um kyn fyrir 12 ára aldur. En ef kynskiptameðferð fer fram eftir að kynþroski hefst, hefur viðkomandi forskot á aðra keppendur sem er ósanngjarnt,“ sagði James Pearce, sem er talsmaður Husain Al-Musallam, í samtali við Associated Press.

Þetta þýðir meðal annars að bandaríska transkonan Lia Thompson getur ekki keppt í kvennaflokki en hún varð fyrsta transkonan til að vinna sundtitil í háskólaíþróttum í Bandaríkjunum. Sigur hennar í 450 metra skriðsundi kvenna er sagður eiga mikinn þátt í þessari ákvörðun FINA.

Skildu eftir skilaboð