Pfizer rannsókn: 3000 af 4526 börnum í yngsta hópnum hættu í miðri rannsókn

frettinErlentLeave a Comment

Dr. Clare Craig er meinafræðingur og meðstjórnandi HART samtakanna. Hún fer í gegnum sönnunargögnin sem Pfizer lagði fram hjá FDA (Matvæla - og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna) fyrir sex mánaða til fjögurra ára gömul börn í umsókn um neyðarleyfi á Covid bóluefnum fyrir þann aldurshóp.

„Það er verulega mikið að þessari rannsókn sem er hneykslanlegt,“ segir Dr.Craig.

Í rannsókninni tóku 4.526 börn á aldrinum sex mánaða til fjögurra ára þátt. 3.000 þessara barna kláruðu ekki rannsóknina. Það er gríðarlegur fjöldi. Tveir þriðju hlutar. Hvers vegna voru öll þessi afföll? Því þarf að svara. Og án þess að svara því, bara af þessum eina grundvelli, ætti þessi rannsókn að teljast ógild.

„Hvað sýndi rannsóknin? Rannsóknaraðilar skilgreindu það sem alvarlegt Covid hjá börnum sem voru með örlítið hækkaðan hjartslátt eða fáeina aukaandardrætti á mínútu.“

Það voru sex börn á aldrinum tveggja til fjögurra ára sem voru með alvarlegt Covid í bóluefnahópnum en aðeins eitt í lyfleysuhópnum. Þannig að á þeim grundvelli eru líkurnar á því að þetta bóluefni valdi í raun og veru alvarlegu Covid meiri en líkurnar á að svo sé ekki.

Það var reyndar eitt barn sem var lagt inn á sjúkrahús í þessari rannsókn. Það var fékk hita og flog/krampa (e.seizure). Barnið var í bóluefnahópnum.

„Hvað skilgreindu rannsóknaraðilar sem Covid? Og það sem þeir gerðu var að snúa gögnunum algjörlega á hvolf,“ sagði Dr. Craig.

Rannsóknaraðilar bólusettu börnin og biðu í þrjár vikur með að gefa þeim annan skammtinn. Á því þriggja vikna tímabili fengu 34 af bólusettu börnum Covid en aðeins 13 í lyfleysuhópnum, sem þýddi 30% auknar líkur á að fá Covid á því þriggja vikna tímabili ef barnið var bólusett.

„Og hvað gerðu rannsóknaraðilar? Þeir hunsuðu gögnin.“

Síðan var átta vikna bil á milli annars og þriðja skammtsins (Pfizer notar þrjá skammta fyrir yngsta hópinn), þar sem fjöldi barna í bólusetningahópnum fékk Covid og þeir hunsuðu þau gögn.

Það voru síðan sjö dagar eftir þriðja skammtinn, sem þeir hunsuðu líka.

Sem þýddi að á endanum höfðu þeir hunsað 97% af Covid tilfellum sem áttu sér stað meðan á rannsókninni stóð og þeir skoðuðu bara á örfá tilfelli. Í lokin voru þeir að bera saman þrjú börn í bóluefnahópnum sem voru með Covid og sjö í lyfleysuhópnum og sögðu að þetta sýndi að bóluefnið væri áhrifaríkt.

Hér neðar má sjá og heyra í Dr. Craig og hér má lesa alla greiningu HART samtakanna á rannsókn Pfizer.


Skildu eftir skilaboð