Jaylon Ferguson leikmaður Baltimore Ravens lést skyndilega 26 ára gamall

frettinErlentLeave a Comment

Jaylon Ferguson, varnarmaður Baltimore Ravens, er látinn 26 ára gamall. Lögreglan brást við tilkynningu um „vafasamt andlát“ á heimili í Baltimore um klukkan 23:25 á þriðjudag.

Þar fann hún Jaylon meðvitundarlausan en læknar voru á vettvangi sem úrskurðuðu hann látinn augnabliki síðar. Lögreglan fann engin merki um áverka og ekki er talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti.

Rannsókn á dánarorsök á eftir að fara fram.

Baltimore Ravens sendu frá sér tilkynningu og minntust Ferguson:

Skildu eftir skilaboð