Leoncie heldur tónleika eftir margra ára hlé

frettinInnlendarLeave a Comment

Stúdíó Hljómur sendi frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu:

Hin eina sanna Leoncie kemur fram á tónleikum föstudaginn næstkomandi þann 24. júní á Gauknum!

Leoncie hefur ekki komið fram á opnum tónleikum í nokkur ár og lofar hún frábærri skemmtun.

Húsið opnar kl 20:00 með upphitunaratriði KS-Flokksins og kemur Leoncie sjálf á svið kl 22:00.

Eins og landanum er kunnugt, er Leoncie fagmaður fram í fingurgóma og skemmtir af guðs náð!
Um er að ræða einstakan viðburð og er takmarkaður miðafjöldi.

Miðasala er hafin á Tix.is

Facebook Event:

Ef óskað er eftir samtali við Leoncie, vinsamlegast sendið okkur tölvupóst hér og við komum því áleiðis!

Stúdíó Hljómur

Skildu eftir skilaboð