Tala látinna Íslendinga eykst um 35% á fyrsta ársfjórðungi 2022

frettinInnlendar2 Comments

Bæring Ólafsson, fyrrverandi forsetaframbjóðandi og framkvæmdastjóri Coca Cola International, skrifar á facebook um þá mikla aukningu dauðsfalla hér á landi upp á síðkastið og spyr hvað sé að gerast. Hann bendir á að engin umræða sé um þessa aukningu sem sjá má á Hagstofu Íslands samkvæmt ársfjórðungum á árinu 2010 til 2022. „Tala látinna hefur aukist um +35% nú á fyrsta ársfjórðungi 2022 eða 780 dauðsföll miðað við um 580 dauðsföll að meðaltali ársfjórðungana frá 2015-2021.“

Bæring segir að sjá megi að talsvert fleiri hafi látist í upphafi þessa árs samanborið við lok síðasta árs. „Það sem gerir þetta óvenjulegra er að fjöldi látina á Íslandi hefur verið nokkuð stöðugur um árabil,“segir hann og bendir réttilega á að þetta geti varla tengst COVID, þar sem einungis 21 hafi látist á þessu ári af völdum sjúkdómsins. Hér má skoða þessar tölur Hagstofunnar.

Bæring bæti við: „Samtals eru þetta +200 umframdauðsföll bara á einum ársfjórðungi og ef heldur sem áfram þá stefnir í +800 aukadauðsföll fyrir árið 2022 eða um 3,120 í heildina miðað við meðaltal síðustu 7 ára um 2,350 semsagt yfir 30% aukning.“

Hann segir þetta alvarlegt mál sem þurfi að skoða sem fyrst. „Eru stjórnvöld, heilbrigðisyfirvöld, fjölmiðlar og almenningur yfirleitt ekkert að skoða þetta og er þetta ekki túlkað sem neyðarástand og öllum bara alveg sama, Hvernig væri að hysja upp um sig buxurnar og kryfja þetta til mergjar og það strax og finna út hvað sé eiginlega í gangi og upplýsa almenning um þetta neyðarástand….. yfir 30% aukning dauðsfalla hlýtur að vera algjört forgangsverkefni ….. og ekki eru þetta Covid dauðsföll þar sem þau eru einungis 21 fyrir 2022.“

Andvana fæðingar jukust um 80% á árinu 2021

Við þessi skrif Bærings má bæta við að andvana fæðingar hér á landi jukust um 80% á árinu 2021 og dauði barna á fyrsta æviárinu jókst um 100% frá fyrra ári. Tölur um andvana fæðingar á árinu 2022 eru ekki tiltækar. Meira um þetta alvarlega mál sem þaga virðist eiga í hel má lesa hér.


2 Comments on “Tala látinna Íslendinga eykst um 35% á fyrsta ársfjórðungi 2022”

  1. En eitt er nú alveg á hreinu – að það er ekki Covid bóluefnið sem er um að kenna. Það er 100% öruggt, og 100% áhrifaríkt. Þessar dánartölur væru margfalt hærri ef fólk hefði ekki hlýtt Víði og co. og drifið síg í sprautuhöllina.

Skildu eftir skilaboð