Kanadíski uppistandarinn Nick Nemeroff lést skyndilega 32 ára gamall

frettinErlentLeave a Comment

Kanadíski uppistandarinn Nick Nemeroff lést skyndilega á mánudaginn, 32 ára að aldri, upplýsti fjölskylda hans.

„Það er með mikilli sorg sem við tilkynnum skyndilega fráfall ástkærs bróður okkar Nick Nemeroff,“ segir í yfirlýsingu á Instagram.

Engin dánarorsök hefur verið upplýst. CBC News í Kanada greindi aftur á móti frá því að yfirmaður Nemeroff, Morgan Flood hjá Grand Wave Entertainment, hafi sagt að Nemeroff hafi látist í svefni.

Meðfylgjandi er myndband frá því á síðasta ári þar sem Nemeroff liggur á sjúkrahúsi veikur eftir Covid sprautur.

Hann segir þar, ég mun ekki taka þriðju sprautuna, ég mun ekki taka hana. Pfizer me once - no shame, Pfizer me twice - shame on Covid, Pfizer me three times, shame on you.

Þið viljið að ég fái þriðju sprautuna, hvað er næst, fimmta sprautan. Nei takk.


Skildu eftir skilaboð