„Þetta er eins og hryllingsmynd sem ég er neyddur til að horfa á“ – C-19 bólusetningar barna

frettinArnar Sverrisson, Pistlar2 Comments

Eftir Arnar Sverrisson sálfræðing:

Læknirinn, Marty Makary, prófessor við John Hopkins háskólann, og læknirinn, Tracy Beth Höeg, faraldursfræðingur við heilbrigðisráðuneytið í Florida, reyna nú að reisa rönd við óábyrgum bólusetningum barna gegn Covid-19 með bóluefnum frá Moderna og Pfizer.

Þau hafa m.a. tekið viðtöl við sérfræðinga heilsuverndarmiðstöðva í Bandaríkjunum (CDC – Centers for Disease Control), Lyfja- og matvælaeftirlitsins (FDA – Food and Drug Administration) og Þjóðarheilbrigðisstofnunarinnar (NIH – National Institute of Health).

Samkvæmt greininni finnst viðmælendum þrengt mjög að málfrelsi sínu, svo mjög reyndar, að þeir þora ekki að opna munninn um alla þá ósvinnu, fúsk og ábyrgðarleysi, sem þar á sér stað. Málið virðist fyrst og fremst snúast um stjórnmál, en hvorki vísindi né lýðheilsu.

Viðmælendur leyfðu, að eftir þeim væri orðrétt haft, en undir nafnleynd. Svo sterkur er þrælsóttinn. Einn þeirra sagði: „Þetta er eins og að vera neyddur til að horfa á hryllingsmynd. Fólki eru gefin vond ráð og við verðum að þegja.“ Þessi orð féllu í sambandi við leyfisveitingu bólusetningar barna og hvítvoðunga – og örvunarsprautu þar að auki. Enn eru fúskgögn frá lyfjafyrirtækjunum lögð til grundvallar.

Um þau segja greinarhöfundar: „Svo ófullkomnar og hroðvirknislegar niðurstöður rannsókna á svo klénu þýði, hefðu hvergi birst í málsmetandi læknatímariti. En kjarni máls er sá, að þessar niðurstöður hefðu átt að valda lýðheilsufulltrúunum umhugsun og efasemdum.“

Læknir í CDC sagði: „Mér virðist það glæpsamlegt, að við skyldum gefa meðmæli með mRNA Covid bólusetningu ungbarna, án þess að hafa gild gögn í höndunum. Í raun og veru vitum við ekki enn þá, hver áhættan er.“

Grímuskylda í skólum var misráðin og skeinuhætt með tilliti til þroska barna. Aukin heldur hefti hún ekki útbreiðslu smita. Sama átti við um skólalokanir. Náttúrulegt ónæmi var litið hornauga.

Ábyrgum starfsmönnum er ofboðið. Það kynni að skýra fjölmargar uppsagnir að undanförnu. Það „verkjar í“ siðferði þeirra. Sumir ætla þó að þrauka fram á lífeyrisaldur.

Pistill Arnars með heimildum.

2 Comments on “„Þetta er eins og hryllingsmynd sem ég er neyddur til að horfa á“ – C-19 bólusetningar barna”

  1. Fólk á Vesturlöndum eru orðin eins hrædd að tala upphátt eins og fólk í Kína! Enda vill valdaelítan taka upp kínverska stjórnarhætti.

  2. Það er gríðarleg skoðana kúgun og hóp árásir á fólk sem hefur ekki “ rétta” skoðun á málefnum varðandi covit bólusetningar öfga og ofbeldis femínisma og málefnum samkynhneygðra og ekki síst Transfólks þar sem þeir raunveruleikafyrtu hreinlega krefjast þess að enginn sjái né taki eftir því að kvennmaður er fúlskeggjaður og dimmraddaðaður eða óeðlilegur á alla vegu.
    “ Góða fólkið” virðist telja sig hafa fullan rétt að úthúða smána og níða það fólk niður í dýpstu dali sem vogar sér að finnast það ógirnilegt og ógeðfellt að sjá fúlskeggjaða kallmenn í kynferðislegum athöfnum eða að þjappa rétt dagsins frá deginum áður.
    Skoðun fólks og smekkur er frjáls er ekki annara að ákveða, en það skýtur skökku við að þeir sem ekki hrópa húrra og sýna ekki aðdáun og ást á kvennmönnum með limi og skegg séu kúgaðir niður og úthrópaðir sem fordómafullir viðbjóðir og óskað dauða og stjaksetningar.
    Stoppum skoðanakúgun hérlendis, það er til margskonar fólk og margskonar skoðanir og þær eiga allar rétt á sér rétt eins og fólkið sem er að berjast fyrir sínum réttindum að vera kallaðir konur þrátt fyrir að vera fæddir kallmenn með kallmanns litninga sem aldrei breytist sama hvað raunveruleika blinda fólkið heldur fram í heimsku sinni og fáfræði.

Skildu eftir skilaboð