Fréttaritari forsetafrúarinnar Jill Biden hættir

frettinErlentLeave a Comment

Michael LaRosa, fréttaritari forsetafrúarinnar Dr. Jill Biden, er að hætta störfum í Hvíta húsinu, sagði embættismaður í Hvíta húsinu við CNN.

LaRosa byrjaði sem talsmaður Biden árið 2019 í framboði hans til forseta og var skipaður fjölmiðlafulltrúi í janúar 2021. Í september fékk hann einnig titilinn sérstakur aðstoðarmaður forsetans.

Afsögn LaRosa hefur verið kunn í nokkurn tíma innan Hvíta hússins en LaRosa ákvað að áður en hann hætti myndi hann aðstoða við þrjár utanlandsferðir forsetafrúarinnar sem sem farnar voru nýlega.

LaRosa hefur ekki gefið upp ástæður afsagnar sinnar en talið er að hann ætli að hefja störf sem framkvæmdastjóri hjá ráðgjafarfyrirtækinu Hamilton Place Strategies.

Óvíst er hver verður eftirmaður LaRosa.

Skildu eftir skilaboð