Móðir stefnir skólayfirvöldum í Los Angeles – syni hennar boðin pizza í skiptum fyrir Covid sprautu

frettinErlentLeave a Comment

Skólayfirvöld í Los Angeles (LAUSD) standa frammi fyrir málsókn frá móður sem ásakar þau um að hafa mútað nemanda í þeim tilgangi að fá barnið til að þiggja Covid sprautu án samþykkis móðurinnar,“ segir í frétt FOX 11 Los Angeles.

Móðirin sem höfðaði málið ræddi við fjölmiðla á staðnum um ástand sonarins.

„Hann er ekki samur lengur. Hann hvílist ekki, hann sefur ekki vel. Hann stundar ekki íþróttir eins og hann gerði. Fyrir mér er ástand hans ekki eðlilegt,“ sagði móðirin.

Móðir drengsins segir að syni sínum hafi verið boðin pítsusneið í skiptum fyrir COVID-19 sprautu í skólanum og síðan látinn falsa undirskrift móður sinnar.

Hún segir son sinn hafa fundið fyrir öndunarerfiðleikum og blætt eftir að hafa fengið sprautuefnið.


Skildu eftir skilaboð