Verðhjöðnunarlög Biden Bandaríkjaforseta

frettinPistlar2 Comments

Eftir Jón Magnússon hæstaréttarlögmann:

Demókratar í Bandaríkjunum hafa fengið samþykkt lagafrumvarp sem þeir kalla verðhjöðnunarfrumvarpið (Inflation reduction act). Í fréttamiðlum hér hefur það iðulega verið nefnt loftslagsfrumvarpið, sem er ansi vel í lagt. Fyrst og fremst er þetta frumvarp sem kveður á um auknar millifærslur og skattheimtu þó að veita eigi verulega styrki til óarðbærrar svokallaðrar grænnar framleiðslu.

Skattahækkanir eru verulegar til að reyna að vega upp á móti auknum ríkisútgjöldum. Samt sem áður er talað um að með þessu nýja eyðslufrumvarpi muni skuldastaða Bandaríkjanna verða verri en Ítalíu.

Munurinn á Ítalíu og Bandaríkjunum er sá, að Bandaríkin hafa hingað til prentað dollara út úr efnahags mistökum af því að dollarinn er heimsmynt. Hvað lengi geta þeir það?

Biden fékk samþykkt eyðslufrumvarp 2021, sem hleypti af stað mikilli verðbólgu ekki bara í Bandaríkjunum heldur vítt og breitt um heimsbyggðina.

Nýasta lagasetning Biden Demókratana kemur enn til að magna verðbólguna og er því heiti frumvarpsins hrein öfugmæli.

Hætt er við að Seðlabankastjóri Íslands megi sín lítið til að vinna gegn þeirri ofurverðbólgu sem verðhjöðnunarlög Biden eru líkleg til að hafa í för með sér.

Efnahagsstefna Biden er einstök. Til að draga úr verðbólgu er ausið út gjafafé til einstaklinga og fyrirtækja, en á sama tíma lagðir á skattar sem m.a. hækka verð á framleiðsluvörum.

2 Comments on “Verðhjöðnunarlög Biden Bandaríkjaforseta”

  1. Bandaríkjunum er stjórnað af snarklikkuðu fólki, þetta getur aðeins endað illa.

Skildu eftir skilaboð