Blóð, sviti og tár

frettinLífiðLeave a Comment

Svavar Viðarsson fékk blóðtappa í heila og greindist með hjartagalla fyrir um ári síðan og voru honum ekki gefnar miklar líkur á bata.

Ég tók það ekki í mál að ég myndi ekki lifa veikindin af eða festast í þessu ástandi. Ég leyfði mér ekki að hugsa út í það neikvæða sem gæti gerst heldur einblýndi ég á það jákvæða í lífinu og hvað ég hlakkaði til að gera þegar ég væri búinn að ná mér, sem var að taka upp og gefa út plötuna mína Engin lengur veit,"segir Svavar.
                             
Það má svo sannarlega segja að sterkt hugarfar hans hafi komið honum í gegnum veikindin á þennan máta þar sem Svavar hafði náð fullum bata skömmu síðar og eltir nú ástríðu sína í tónlist og útivist.

Platan hans Engin lengur veit er 7 laga, þýðingarmikil, falleg og djúp sem lagt var í blóð, svita og tár.

Öll lögin eru þægileg, grípandi og vel útsett og ættu því allir að finna eitthvað  til að tengja við á plötunni.

Nú getur þú bæði fengið diskinn heimsendan eða hlaðið honum í tölvuna/símann.

Upptökur fóru fram í desember 2021 – apríl 2022 hjá Nice Productions, apríl 2021 hjá Studio Pros og 2020 hjá Studio Leyni.

Hljómsveitin Nostal sá um hljóðfæraleik að mestu en aukalega komu að verkefninu þau Rakel Pálsdóttir (söngur og raddir), Tómas Jónsson (píanó), Sigurður Bjarki Gunnarsson (selló), Matthías Stefánsson (fiðla/víóla) og Vignir S. Vigfússon (kassagítar).

Hljómsveitin Nostal:

Söngur: Bjarni Ómar Haraldsson

Trommur: Ragnar Z Guðjónsson

Bassi: Svavar H. Viðarsson

Rafgítar: Baldur Ketilsson

Rafgítar: Þröstur Leósson

Hljómborð: Jón Karl Ólafsson

Upptökustjórn og útsetningar: Vignir S. Vigfússon

Mastering: Addi 800

Hér neðar er hægt að hlusta á plötuna hans Svavars.


Skildu eftir skilaboð