Öldungardeildarþingmaður biðlar til lækna að stíga fram og segja sannleikann

frettinErlent, The High Wire1 Comment

Öldungardeildarþingmaðurinn Ron Johnson biðlar nú til lækna víðsvegar um Bandaríkin að stíga fram og vera óhræddir við að segja sannleikann og upplýsa um hvað gekk á í Covid faraldrinum. Þingmaðurinn minnir læknana jafnframt á læknaeiðinn sem þeir hafa allir skrifað undir. Þetta kom fram í viðtalsþættinum The High Wire.

Þingmaðurinn segist hvetja alla lækna sem skipta þúsundum til að stíga fram og standa saman sem ein heild. Það sé ekki nóg að einungis nokkrir heiðarlegir læknar þori að segja hvað liggur þarna að baki, eins og t.d Dr. Robert Malone, Dr.Peter McCullough og læknar úr America´s Front Line Doctors samtökunum, heldur sé mikilvægt að allir taki þátt og taki höndum saman.

Þingmaðurinn segir: „ef þú ert vaknaður sem læknir þá skaltu stíga fram og vera óhræddur og við skulum í sameiningu binda enda á þetta brjálæði.“

Ákallið má sjá hér neðar.


One Comment on “Öldungardeildarþingmaður biðlar til lækna að stíga fram og segja sannleikann”

Skildu eftir skilaboð