Evrópa betlar af Noregi – án árangurs

frettinErlent, Pistlar1 Comment

Eftir Geir Ágústsson:

Evrópa hefur vanrækt í fjölda ára að leita að og sækja olíu og gas á eigin landsvæðum. Þjóðverjar vilja ekki stunda svokallað "fracking" sem er leið til að ná gasi úr bergi (gætu mögulega skipt um skoðun þar í ljósi aðstæðna) og Danir ætla að loka öllum olíu- og gaslindum fyrir 2050, sem drepur svolítið langtímaávinning af því að leggja í nýjar lindir. Hollendingar eru á svipaðri línu og hafa smátt og smátt dregið úr gasframleiðslu úr stærstu gaslind Evrópusambandsins (gætu mögulega skipt um skoðun þar í ljósi aðstæðna).

Eftir stendur innflutningur á gasi frá Austur-Evrópu og vesturhluta Asíu og sérstaklega Rússlandi, og auðvitað frá Noregi. Og Norðmenn slappa núna af á meðan peningarnir streyma í kassann þeirra.

Hvað gera Evrópumenn þá? Þessir sömu og komu sér í klípu? Jú, fara með betlistaf til Noregs og reyna semja um afslátt. Sama og þegið, segja Norðmenn. Og bráðum opnar Baltic Pipe sem stækkar markaðssvæði norska gassins töluvert og þar með möguleika þeirra til að selja á enn hærra verði. Og hátt er það nú þegar:

Samkvæmt nýjum útreikningum Nordea Markets, deild Nordea banka, stefnir í að norska ríkið þéni 1500 milljarða norskra króna á olíu- og gassölu á þessu ári og 1900 milljarða norskra króna árið 2023. Til samanburðar komu 830 milljarðar norskra króna í norska ríkissjóðinn árið 2021, sem var met á þeim tíma.

Þeir mega eiga það Norðmenn að þeir eru góðir að búa til peninga. Danir segja með svolítilli biturð í röddinni að þegar vindar blása þá fá Norðmenn ódýrt rafmagn frá Danmörku en þegar er logn þá kaupa Danir dýrt rafmagn frá norskum vatnsaflavirkjunum. Norðmenn hafa aldrei hægt á fjárfestingum í olíu og gasi og hafa meira að segja verið að gefa í undanfarin misseri. Og núna mæta aðrir með betlistafinn en uppskera ekkert nema markaðsverð.

Það borgar sig að hlusta ekki alltof mikið á raunveruleikafirrta græningja sem vilja eyðileggja samfélagið okkar í nafni umhverfisverndar en anda sósíalista.

Borgar sig mjög vel.

One Comment on “Evrópa betlar af Noregi – án árangurs”

  1. Er hið góða og græna fólk á Vesturlöndum á villibraut? Stefnir í óefni í orkumálum með tilheyrandi hörmungum fyrir almenning?

Skildu eftir skilaboð