Tvítug upprennandi íshokkístjarna hneig niður í leikhléi og lést

frettinErlent, Íþróttir1 Comment

Hinn tvítugi Eli Palfreyman, upprennandi íshokkístjarna í Kanda, lést í leikhléi í Ontario á þriðjudag.

Palfreyman, sem lék með liðinu Ayr Centennials hneig niður þegar hann og lið hans voru í búningsklefanum í fyrsta leikhléi á íshokkímóti á North Dumfries vellinum.

Lögreglan í Waterloo segir að lögreglumenn hafi mætt á völlinn eftir að hafa fengið neyðarhringingu frá lækni og segir að félagar í liðinu hafi veitt Palfreyman aðstoð þar til neyðarþjónustan kom á staðinn.

Hann var fluttur á Cambridge Memorial sjúkrahúsið en var úrskurðaður látinn á staðnum. Dánarorsök hefur ekki verið gefin upp.

One Comment on “Tvítug upprennandi íshokkístjarna hneig niður í leikhléi og lést”

Skildu eftir skilaboð