Detox: Átta einfaldar leiðir til að afeitra líkamann á einni viku

frettinInnlendarLeave a Comment

Haustmánuðir er frábær tími til að afeitra líkamann og hressa upp á heilsumatseðilinn. Þegar kólna tekur í veðri hægir á efnaskiptunum, en líkaminn fer í eins konar varnarstöðu til að geyma forða fyrir veturinn. 

Því er haustafeitrunin mikilvægur þáttur í iðkun heilbrigðra venja þar sem þú vilt ekki einungis hreinsa líkamann af eiturefnum, heldur einnig hraða meltingunni og styrkja ónæmiskerfið um leið, allt í þeim tilgangi að hindra óæskilega þyngdaraukningu yfir myrkasta tíma ársins.

Hér fara átta einfaldar leiðir til að afeitra líkamann að hausti, en þó tillagan hljómi einungis upp á viku, er hverjum og einum frjálst að stýra því hversu lengi ferlið stendur yfir, meðan skammdegið gengur yfir – allt í þeim tilgangi að styrkja ónæmiskerfið og örva meltinguna.

Grænt kál

Grænkál, brokkolí, spínat og agúrkur innihalda gnægt vítamína og minna líkamann á sumarið; reglubundin neysla á grænu káli viðheldur líkamlegri orku yfir myrkasta tíma ársins og hjálpar til við meltinguna, losar um eiturefni og styrkir ónæmiskerfið.

Sætt grænmeti 

Grasker, sætar kartöflur, gulrætur og baunir eru frábær valkostur fyrir hausthreinsunina. Þessi gerð grænmetis, sem iðulega er tekin upp á haustin dregur úr þörf fyrir sætindi og súkkulaði sem hellist oft yfir fólk þegar haustið sækir að. Þetta er tilvalin viðbót á haustmatseðil heimilisins en Beta-Karótínið í gulrótunum og A-vítamínið sem þessi gerð grænmetis inniheldur styrkir líka ónæmiskerfið, verndar hörundið og sjálfa sjónina líka.

Heil korn

Ef þú vilt hleypa krafti í áætlunina, skaltu bæta heilkornamáltíðum á matseðilinn, samtímis sem þú sneiðir hjá glútenríku fæði og hvítu hveiti. Hafrar, kínóa og fleiri gerðir af hollu korni draga í sig kólesteról og óæskileg efni á ferðalagi sínu gegnum meltingarveginn og losa þannig líkamann við eiturefni.

Vatn

Köld veðráttan á Fróni getur þurrkað upp hörundið, sem er stærsta líffæri líkamans. Til að vernda hörundið gegn ofþurrki í kuldanum og einnig til að hjálpa líkamanum að skola út eiturefni, skaltu því drekka a.m.k. 6 vatnsglös á hverjum degi.

Hreyfing

Svitinn er besta leiðin til að hita upp líkamann og örva brennsluna, en hreyfing gerir að verkum að líkaminn getur líka brennt og losað sig við öll eiturefni líkamans meðan á afeitrunarferlinu sjálfu stendur. Best er að æfa í ca. 30 – 60 mínútur í einu og til eru fjölmörg líkamsræktarkerfi sem hægt er að velja úr, allt eftir því hvað hentar.

Sykur og sætuefni

Þú ættir að forðast sykur og gervisætuefni alveg meðan á afeitrun stendur. Sætuefni eru líkamanum ekki holl og innihalda snefilefni sem líkaminn þarf sárlega að losa sig við meðan á afeitrun stendur. Haltu þér því við 2 matskeiðar af Agave sírópi eða Stevíu á dag að algeru hámarki meðan á afeitrun stendur.

Mjólkurvörur

Þegar kólnar í veðri, skaltu draga úr inntöku á mjókurvörum í þeim tilgangi að draga úr slímmyndun í öndunarfærum. Eitt glas af léttmjólk ætti að vera nóg á dag, nema skyr eða aðrar mjólkurafurðir verði fyrir valinu. Góð tilbreyting gæti einnig verið að velja möndlumjólk út í kaffið eða í tebollann.

Olíur

Haltu þér við ólífuolíu meðan á afeitrunarferlinu stendur, til að smyrja líkamann að innan. Ólífuolían inniheldur ómega-3 fitusýrur sem styrkja líkamann og hvetja meltinguna áfram.

Mikilvægasti þátturinn í kerfisbundinni afeitrun er úthald og ákveðni. Gerðu áætlun sem hentar þér best; matar- og æfingaplan sem spannar allan sólarhringinn í heila viku. Þú ákveður upp á eigin spýtur hversu lengi þú vilt halda í við afeitrunaráætlunina, eða detox-planið eins og það er oft kallað í daglegu máli.

Skildu eftir skilaboð