Eftir Pál Vilhjálmsson kennara og blaðamann:
Kona, nákomin Páli skipstjóra Steingrímssyni, byrlaði honum og stal síma hans 3. maí í fyrra. Konan stríðir við andlega vanheilsu. Hún afhenti blaðamanni RSK-miðla síma skipstjórans til afritunar samkvæmt fyrirfram ákveðnu skipulagi. Eftir gagnastuldinn var símanum komið fyrir á sjúkrabeð Páls, sem var á gjörgæslu.
Lögreglan hóf rannsókn málsins 14. maí í fyrra, eftir kæru Páls skipstjóra.
Fyrsta yfirheyrslan yfir konunni fór fram 5. október.
Tveim klukkustundum fyrir yfirheyrsluna hringdi Þóra Arnórsdóttir ritstjóri hjá RÚV í veiku konuna, sennilega ekki til að vita hvernig henni liði.
Gögn lögreglu sýna yfir 20 símtöl Þóru og byrlara Páls skipstjóra á tímabilinu sem yfirheyrslur fóru fram yfir fimm sakborningum.
Líklega voru ræddar uppskriftir - þó ekki þær sem kenndar eru við kökur.
RSK-miðlar, RÚV, Stundin og Kjarninn, reyndu frá ágúst að búa til samræmda frásögn um það sem gerðist í apríl og byrjun maí í fyrra þegar atlagan að Páli skipstjóra var skipulögð og framkvæmd. Ekki undir neinum kringumstæðum mátti hið sanna koma í ljós. Litla-Hraun og Hólmsheiði eru ekki skemmtilegir áfangastaðir.
Lögreglan hlustaði.
2 Comments on “Þóra hringdi í byrlara Páls skipstjóra”
Hvaða sannanir hafið þið fyrir því að Þóra hafi verið að ræða byrlanir? Hvers vegna sleppir Fréttin.is að ræða þá saknæmu upplýsingar sem reyndust vera í símanum hjá leppi Samherja? Mynduð þið bregðast eins við ef einhver að þeim sem þið ásakið væri byrlað og sannanir um samsæriskenningarnar ykkar væru í síma þess aðila? Er Samherji kannski orðinn styrktaraðili hjá ykkur? Eða eruð þið bara uppfull af þeirri hræsni sem þið sakið aðra um?
Fréttin sleppir engu, þetta er grein eftir Pál Vilhjálmsson og er birt orðrétt, án allra breytinga.