Hægri flokkarnir komnir með meirihluta í sænsku kosningunum

frettinErlentLeave a Comment

Hægri sinnuðu stjórnarandstöðuflokkarnir í Svíþjóð eru nú komnir með nauman meirihluta á sænska þinginu samkvæmt nýjustu tölum, en þeir skilgreina sig sem mið-hægri flokka.

Ef þetta verður niðurstaðan er búist við að Ulf Kristersson, leiðtogi Moderataflokksins, verði forsætisráðherra á meðan Svíþjóðardemókratar, sem andvígir eru núverandi innflytjendastefnu vinstri flokkanna, yrði stærsti hægriflokkurinn og næðu í fyrsta sinn að hafa bein áhrif á stefnuna.

Jafnaðarmanna­flokk­ur Magda­lenu And­er­son, for­sæt­is­ráðherra, hef­ur enn mest fylgi, með rúmlega þrjá­tíu pró­sent at­kvæða. Aft­ur á móti hafa Svíþjóðardemó­krat­ar haldið áfram að sækja í sig veðrið og eru næst stærsti flokk­ur­inn, með 20,7 pró­senta at­kvæða.

Miðað við stöðuna núna virðast Svíþjóðardemó­krat­ar hafa bætt við sig tíu þing­sæt­um frá síðasta kjör­tíma­bili.

Þetta sýnir að Svíar virðast vera komnir með nóg að stefnu núverandi stjórnar sem einkennist af óreiðu og úrræðaleysi en há glæpatíðni hefur verið í landinu á meðal erlendra glæpagengja sem hefur verið illviðráðanleg og lögreglan segir að komið sé yfir þolmörk.

Þá er ekki ólíklegt að önnur stefna verði tekin á ýmsum málum eins og skatta- og loftslagsmálum og hert verði á innflytjendalöggjöfinni, verði þetta niðurstaðan.

Endanleg niðurstaða ætti að liggja fyrir á miðvikudaginn.

Skildu eftir skilaboð