Kanadíski leikarinn Robert Cormier látinn 33 ára

frettinErlent, LífiðLeave a Comment

Leikarinn Robert Cormier sem lék í  kanadísku sjónvarpsþáttunum Heartland er látinn 33 ára að aldri.

Cormier lést föstudaginn 23. september á sjúkra­húsi í Et­obicoke í Ont­ario eft­ir að hafa hlotið al­var­lega áverka í falli samkvæmt systur hans, segir í  nokkrum erlendum fjölmiðlum.

Í Daily Mail segir þó að ekkert sé gefið upp um dánarorsök Cormier í minningargrein um hann.

Cormier fór með hlut­verk Finns í síðustu tveim­ur þáttaröðum Heart­land en alls hafa verið gerðar 15 serí­ur. Cormier er minnst á Twitter-síðu Heartland.

Input your text here! The text element is intended for longform copy that could potentially include multiple paragraphs.

Skildu eftir skilaboð