C-19 bólusetningar hafa ekkert með vísindi að gera, bara áróðursherferð og lygi

frettinInnlendar4 Comments

Guðmundur Karl Snæbjörnsson sérfræðingur í heimilislækningum var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur á Útvarpi Sögu í dag þar sem hann fjallaði  meðal annars um þann „vafasama heiður“ Íslendinga að tróna á toppnum í umframdauðsföllum í Evrópu, nokkuð sem Færeyingar vöktu athygli á.

Guðmundur Karl segir upplýsingar um umfram dauðsföllin hér á landi séu sláandi og að kanna þurfi að alvöru hverjar orsakirnar séu og bendir á að að þegar til dæmis sé horft til Bandaríkjanna þá hafi dauðsföll á seinni fjórðungi ársins 2021 í aldurshópnum 18 – 44 ára fjölgað um rúm 84%. Þegar breyturnar eru skoðaðar sést að þau dauðsföll koma í beinu framhaldi af skyldubólusetningum af hálfu fyrirtækja.

Guðmundur benti á að það sem vitað er um umframdauðsföllin hér á landi er að 9 af hverjum 10 einstaklingum hafiverið bólusettir og veki það að sjálfsögðu upp ákveðnar spurningar. Það sem verra er, sagði Guðmundur Karl, er að spurningum um tengsl bólusetninga við dauðsföllin hafi enn ekki verið svarað.

„Við vitum hins vegar að byrjað var að bólusetja á þessum seinni helmingi árið 2021 og við vitum að við vorum ekki að sjá þessar tölur árið 2020,“ segir Guðmundur. Hann benti á áhugaverða tölfræði frá Bretlandi sem athyglisvert er að bera saman við umfram dánartíðni hér á landi.

„Það eru opinberar tölur sem hafa verið birtar í Bretlandi og sýna að 92% af þessum umfram dauðsföllum voru bólusettir einstaklingar, bætti hann við.

Hann sagði líka að hér hafi tíðkast að skrifa öll dánartilvik sem bæði eru vegna Covid og önnur umfram dánartilvik á Covid, en ekki sé tekið tillit til þess hvort fólk hafi látist af völdum aukaverkana af sprautunum, það sé miður að fólk skuli ekki að fá réttar upplýsingar.

„Með svona upplýsingum þá er tekinn burt sá réttur fólks til að vega og meta hvort það séu svona margir að deyja vegna Covid bólusetninga eða vegna Covid sem er í dag nánast bara kverkaskítur þó hann sé það ekki fyrir þá sem eru marg bólusettir, því hjá þeim verða áhrif Covid verri.“

Guðmundur segir að ef málið sé skoðað ofan í kjölinn þá komi í ljós að eftir því sem fólk lætur bólusetja sig oftar verði áhrifin á ónæmiskerfið meiri, ónæmiskerfið veikist og fólk því í meiri hættu en ella á að veikjast illa og fá endurteknar sýkingar.

Hann gagnrýnir þann mikla áróður sem viðgengist hefur í Covid faraldrinum um ágæti bólusetninga, bólusetninga sem ekki er vitaða hvaða áhrif munu hafa til framtíðar.

„Þetta hefur ekkert með vísindi að gera þetta hefur með áróðursherferðir að gera, jafnvel sá frasi sem hefur verið haldið á lofti um að bóluefni séu örugg og árangursrík. Þessi frasi er lygi frá upphafi, við sjáum jafnvel í upphafsrannsókn Pfizer og Moderna að þar komu fram fleiri dauðsföll og  hún sýndi neikvæðni varðandi útkomu svokallaðrar verndar þannig það var hvorki vernd af bóluefninu né væri það hættulaust.“

Þess má geta að nú hafa fjölmörg ríki þegar sett harðari reglur hvað varðar Covid bólusetningar í ljósi nýrra upplýsinga og þá sér í lagi hvað varðar bólusetningu barna og hafa aldurstakmörk verið sett í fjölda landa Evrópu. Hér á landi hafa slíkar takmarkanir ekki einu sinni komist á blað og hvað þá verið skoðaðar.

Guðmundur Karl hvetur fólk til þess að kynna sér málin vel, til dæmis megi finna heimildir, lesefni og áhugaverða pistla á netinu með því að smella hér og hér.

Hlusta má á þáttinn á vef Útvarps Sögu.

4 Comments on “C-19 bólusetningar hafa ekkert með vísindi að gera, bara áróðursherferð og lygi”

  1. Right on the money Karl, deaths among young people has never been as high or sins they started injecting people with the KILLER vaccines and especially among athletes that have for the past 2 years been dropping down like flies, soccer players, marathon runners including other sportsman’s ship. There have also been a lot of deaths among famous people, musicians, actors, comedians and politicians ages form 18 – 45. Real Dr’s here in the US (and you know who they are) didn’t understand what in a heck was going on, there were no reports from CDC nor FDA so they started looking to Europe and Scandinavia and sure enough the covid deaths and vaccine injury reports were all available for the public to see and from there on they formed their own Dr. alliance and started doing their own studies.
    Many whistleblowers have come forward sins then regarding the forced vaccination even very high up personnel from the pharmaceutical companies including nurses how Covid patients were killed off by the CDC hospital covid protocol care #1 them on an ventilator #2 inject them with remdesivir #3 load of morphine and other goodies #4 then blow up their lungs to its limit with the ventilators = the covid patients didn’t stand a chance. Then many of the death reports came from various morgue’s, one morgue in England reported for the past two years he has never in his lifetime seen so much deaths among young people. Here in the US. lawsuits for the hospital protocol Covid death care have already started and people are starting to awakening up to this terrible horror story, what has been done to them and mass loss of loved ones same goes for the vaccine injuries. My self I’m required to be vaccinated as I’m an defense contractor or manufacture for various dept. within the US Armed forces but my rule of thumb has always been I don’t lick ass for breakfast, lunch nor dinner JUST FOR MONEY they can stick that needle up their own bunghole

  2. I like to add on for those who like to educate them selfs and see the real picture whats going on in the US as well worldwide, I highly recommend subscribing to The Epoch Times, https://www.theepochtimes.com/ , and if you do you automatically get signed up for EpochTV were various investigation reporters talk about the matters, The Epoch times does not publish any stories nor facts unless it has been carefully investigated so far they are in over 25-30 countries,
    They had printing facilities in Hong Kong but their reporters were beaten up and their printing facilities ransacked by the Chinese government of course, I wonder why

  3. Sennilega eru allir sprautu þegar mis mikið skaddaðir eftir tilræðið við mannkynið.

Skildu eftir skilaboð