Trump kærir CNN fyrir æru­meiðingar og rógburð

frettinErlent2 Comments

Donald Trump, fyrr­verandi Banda­ríkjaforseti, hefur kært sjón­varps­stöðina CNN fyrir æru­meiðingar. Trump krefst 475 milljóna Banda­ríkja­dollara í skaðabætur, sem gerir um 69 milljarðar íslenskra króna, en hann sakar sjón­varps­stöðina um æru­meiðingar og róg­burð gegn sér.

Trump heldur því fram í mál­sókn sinni að CNN hafi beitt yfirburðum sínum sem leiðandi sjón­varps­stöð í að beita áróðri gegn honum og það sé pólitísk árás. Málið fer fyrir héraðs­dóm í Fort Lau­der­da­le í Flórída.

Í mál­sókninni, sem telur 29 blað­síður, heldur Trump því fram að CNN hafi lengi gagn­rýnt hann en að á­rásum gegn honum hafi fjölgað upp á síð­kastið. Það sé gert vegna ótta um að hann bjóði sig aftur fram til for­seta í næstu for­seta­kosningum sem fara fram árið 2024.

Reu­ters greinir frá því að í kærunni segi: „Að ásakanirnar séu mjög ærumeiðandi þar sem CNN líkir Trump við Hitler og sem hann kallar „Stóru lygi.“ Þetta er illgjarn og óheiðarlegur fréttaflutningur, sem settur er fram til að ná tilætluðum markmiðum: þ.e. að fá lesendur og áhorfendur til að tengja stefnanda við mestu lágkúru sem hugsast getur og gert í þeim tilgangi að fá lesendur til að óttast hann og kjósa hann ekki í komandi kosningum.

2 Comments on “Trump kærir CNN fyrir æru­meiðingar og rógburð”

  1. Hatur vinstri-sinnaðra fjölmiðla á Trump er yfirgengilegt. Á meðan fær Joe Biden nánast enga gagnrýni. Samt hefur nánast allt farið á verri vegu í hans forsetatíð, frá Afganistan-klúðrinu til óðaverðbólgu til óreiðu á landamærunum, etc. Maðurinn er augljóslega ófær um að gegna embættinu, er með elliglöp á alvarlegu stigi. Hins vegar er allt gert í fjölmiðlum til að halda því leyndu frá almenningi. ´Where is Jackie?´ spurði hann fyrir nokkrum dögum en þingmaðurinn dó í bílslysi í Ágúst og Biden var viðstaddur minningarathöfnina í Hvíta Húsinu! Er það ekki með ólíkunum að Joe Biden fær frípassa í fjölmiðlun, það mátti t.d. ekki fjalla um gjörspilltan son hans, Hunter, í aðdraganda kosninganna.

  2. Unnið mál einfaldlega vegna þess að CNN getur ekki fært haldbær rök fyrir hatursáróðri sínum.

Skildu eftir skilaboð