Tilvist mannsins á stund sannleikans

Erna Ýr ÖldudóttirLífið, Pistlar2 Comments

Netverji nokkur að nafni Arni Mar Jensson ritaði áhugaverða hugvekju á facebook vegginn sinn, og er hún endurbirt í heild með leyfi höfundarins:

„Er það ekki annars verðugt umhugsunarefni að á lægsta tímapunkti mannlegrar tilveru verður efnisheimurinn að engu í huga mannsins? 

Rétt fyrir viðskilnað sálar og líkama umbreytist hugsun mannsins frá því að vera efnistengd í að vera andleg. Hverju sætir og hvaða öfl eru þarna að verki sem hafa þessi áhrif á hugsunina? 

Jú, á þessum tímamótum upplifir maðurinn forgengileika efnisins á eigin skinni og líkama. Raunvísindin sem hann hefur treyst og trúað á allt sitt líf að komi honum að gagni reynast allt í einu haldlaus. Þarna gildir einu hvort maðurinn hafi verið trúmaður eða trúleysingi. Holdlíkami hans bregst honum þrátt fyrir öll þau lyf, bætiefni og læknisaðstoð sem hann hefur lagt traust sitt á. Þrátt fyrir allt það erfiði sem hann hefur lagt á sig til að viðhalda líkamlegri hreysti með hreyfingu og hollustu, þá virkar ekkert á þessari loka stundu. 

Veraldlegir hlutir eru forgengilegir - sálin er eilíf

Fasteignirnar, hlutabréfin og bílarnir hafa ekkert verðgildi lengur þrátt fyrir að hafa kostað blóð svita og tár að eignast og lungan úr ævinni að hlaða kringum sig. 

Á þessum tímapunkti upplifir maðurinn aðeins þá einu ósk sem hann ávalt tók sem sjálfsagða – að fá að lifa.

Af hverju þarf maðurinn að snerta lægstu skör jarðvistarlífsins til að verða þess áskynja að hann hafi fórnað sálarþroskanum, sinni einu varanlegu eign, á altari hverfulleikans – altari efnisins?

Hvað færir okkur betur heim vissuna um andann ofar efninu en hugsun mannsins og þrá á sinni hinstu stund – stund sannleikans.“

2 Comments on “Tilvist mannsins á stund sannleikans”

  1. ,,Hvað stoðar það manninn að eignast allan heiminn, en týna eða fyrirgjöra sjálfum sér?“

  2. Ég fatta satt að segja ekki fyllilega af hverju Arni Mar tekur þennan pól í hæðina, þennan að vér virðist svartsýna pól. Ég fatta ekki heldur fyllilega af hverju ég á að trúa frásögn Arna um hvað flýtur gegnum hugann á lokastund. Lægsti tímapunktur?

Skildu eftir skilaboð