Enginn ávinningur af lokunum: Ísland og Finnland með svipuð umframdauðsföll og Svíþjóð

frettinErlent2 Comments

Undir því yfirskini að „verja líf og heilsu“ gegn veirupest skertu íslensk stjórnvöld ýmis borgaraleg réttindi frá mars 2020 til febrúar 2022. Atvinnu-, funda- og ferðafrelsi var skert verulega. Börnum var jafnvel bannað að stunda íþróttir og skólaganga þeirra var skert. Hömlulausar fjöldaskimanir hófust á jafnt veikum sem einkennalausum. Á veikum grunni þeirra var fólk lokað inni. Stór hluti hinna innilokuðu var ekki smitaður eða löngu hættur að smita. Landinu var nánast skellt í lás með skimana-, sóttkvíar- og bólusetningarkröfum á landamærunum.

Flest ríki Evrópu fóru svipaða leið. Einn ótrúlegasti þáttur þessa máls er að leiðsögnina um afnám borgaralegra réttinda í nafni sóttvarna sóttu menn til alræðisríkisins þar sem pestin kom upp.

Eitt ríki í Evrópu skar sig þó úr. Sænsk sóttvarnayfirvöld ákváðu að treysta borgurunum í stað þess að beita boðum og bönnum. Sænsku sóttvarnalæknarnir sögðu að lokanir og höft væru í besta falli skammgóður vermir. Fyrir þetta uppskáru Svíar almenna fordæmingu í fjölmiðlum.

Íslenski sóttvarnalæknirinn sagði að hann teldi að Íslendingar myndu ekki sætta sig við dauðsföll á borð við þau sem væru í Svíþjóð.

Nú jæja, hvers vegna heyrist þá hvorki hósti né stuna nú þegar umframdauðsföll á Íslandi eru orðin svipuð frá upphafi faraldurs og í Svíþjóð?

Og hvernig má það vera að nágrannar Svía í Finnlandi séu sömuleiðis með álíka umframdauðsföll og Svíar þrátt fyrir að Finnar hafi farið kínversku leiðina?

Að því sögðu að samanburður milli landa af þessu tagi verður aldrei nákvæmur virðist enginn augljós ávinningur af lokunum og öðrum frelsissviptingum þegar Svíþjóð er borin saman við önnur lönd Norður-Evrópu.

Greinin birtist fyrst á Andríki 25. október 2022 og er endurbirt hér með leyfi.

2 Comments on “Enginn ávinningur af lokunum: Ísland og Finnland með svipuð umframdauðsföll og Svíþjóð”

  1. Undanfarin ár eiga eftir að vera minnisstæð og umtöluð í sögunni.Við ættum að líta til baka með sorg og ásetningi um að koma í veg fyrir að svona geðveiki endurtaki sig. Mannfjandsamlegar og fordæmalausar sóttvarnaraðgerðir sem skiluðu okkur engu nema andlegum sjúkdómum,neyð og örbirgð fjölmargra. Við getum þakkað þeim sem héldu uppi merki heilbrigðrar skynsemi og andæfðu offorsinu. Listamenn sem ortu um ástandið og styrktu andann eiga heiður skilinn. Þessi franski tónlistamaður söng og dansaði og vakti gleði og von hjá mótmælendum, (enskur texti fylgir). https://www.youtube.com/watch?v=SyBEMRyt6Qg

Skildu eftir skilaboð