Olía á verðbólgubálið

frettinJón Magnússon, Pistlar, StjórnmálLeave a Comment

Jón Magnússon skrifar:

Borgarstjórinn í Reykjavík gerði grein fyrir því í gær, að borgarsjóður væri rekinn með milljarða halla og hallarekstur væri fyrirsjáanlegur. Vissulega nokkuð önnur mynd en dregin var upp í aðdraganda kosninganna sl. vor. 

Lausnin sem borgarstjóri býður borgurunum upp á er aukin skattheimta og veruleg hækkun á þjónustugjöldum, sem munu auka enn á verðbólgubálið, en meirihlutanum í Reykjavík kemur það ekki við. Samfylking, Viðreisn og Framsóknarflokkurinn bera alla ábyrgð á því að svona skuli vera komið og engin þeirra flokka ætlar sér að axla ábyrgð vegna þessa eða annars. Það gera óreiðustjórnmálamenn almennt ekki hvorki hjá ríki eða borg.

Á sama tíma og borgarstjóri tilkynnir um óreiðuna og skuldasöfnunina hjá Reykjavíkurborg hækka fasteignagjöld verulega vegna ofurhækkana á fasteignum á síðasta ári, en það dugar samt hvergi til. Í tillögum meirihlutans er auk heldur engar haldbærar tillögur til lausnar aukinni skuldasöfnun, þar sem áætlanir meirihlutans miða við áframhaldandi hallarekstur og aukna skuldasöfnun.

Þrátt fyrir hallareksturinn sem bitnar á borgurum Reykjavíkur vegna ofurskatta á fasteignir og hækkaðra þjónustugjalda ætlar Reykjavík samt ekki að hægja neitt á bruðlinu. Áfram verða borgarfulltrúar á glórulausum ofurlaunum miðað við vinnuframlag og pólitískum vinum og vandamönnum verður áfram gefið á garðann svo sem mest má verða.  Það er því ekki neins góðs að vænta meðan þessi meirihluti Framsóknar, Viðreisnar og Samfylkingar fer með völdin í Reykjavík.  Mál er að linni. 

Skildu eftir skilaboð