Færeyingar kaupa ekki Rússahatrið

frettinPáll Vilhjálmsson, Stjórnmál3 Comments

Eftir Pál Vilhjálmsson:

Rússahatrið er vestrænt bandalag viljugra þjóða bandarískrar heimsvaldastefnu. Færeyingar taka ekki þátt og endurnýja fiskveiðisamning við Rússa sem er frá tímum Sovétríkjanna.

Fáar vestrænar þjóðir þora að taka sér Færeyinga til fyrirmyndar. Í öðrum heimsálfum, Asíu, Suður-Ameríku og Afríku, eru þær aftur margar sem láta sér í léttu rúmi liggja valdabrölt Bandaríkjanna, ESB og Nató í Austur-Evrópu. Heimsbyggðin hefur séð vestrænt forræði í framkvæmd í Afganistan, Írak, Sýrlandi og Líbýu og finnst ekki mikið til koma.

Stríðið í Úkraínu er siðferðilega, pólitískt og efnahagslega rangt. Það byrjaði ekki 24. febrúar í ár, þegar Rússar réðust inn í Úkraínu, heldur vorið 2008 þegar Bandaríkin og Nató gáfu út yfirlýsingu um að Úkraína yrði Nató-ríki.

Hernaðarbandalaginu er stefnt gegn Rússlandi. Með Úkraínu í Nató eru Rússum allar hernaðarlegar bjargir bannaðar. Það er nóg að horfa á landakortið til að sjá það. Það hefði verið vesturlöndum útgjaldalaust að láta Úkraínu vera hlutlaut ríki á milli Nató og Rússlands. En það stóð aldrei til.

Úkraína er verkfæri til að ná forræði yfir Rússlandi. Vesturveldin munu berjast á sléttum Garðaríkis til síðasta Úkraínumannsins.

Færeyingar kaupa ekki vestrænan yfirgang. Virðing.

3 Comments on “Færeyingar kaupa ekki Rússahatrið”

  1. Ekkert sem kemur á óvart:

    Það var löngum vitað að Neggvarnir standa Mörlandanum miklu framar í andlegu atgjörvi

  2. Flott mál hjá Færeyingum að láta ekki aðra segja sér hvernig á að gera hlutina, enda kemur öðrum ekkert við hvað þeir gera…

  3. Enda er þetta ekki Rússahatur. Þetta er barátta þeirra sem vilja bara láta taka af sér forhúðina og þeirra sem vilja láta taka allt verkfærið. Hinir sitja á hliðarlínunni. Færeyingar hafa flestir allt verkfærið sitt ósnert og taka því ekki þátt í ruglinu. Ísland er Paradís “femínistanna” og tekur þar af leiðandi þátt í hvaða rugli sem er. Meðal annars í því að tjóna þá sem hafa allt sitt, ósnert.

Skildu eftir skilaboð