Ungur sonur Rod Stewart fluttur meðvitundarlaus og blár af fótboltavelli

frettinFræga fólkið, Íþróttir1 Comment


Ellefu ára gamall sonur söngvarans Rod Stewart var um daginn fluttur í skyndi af fótboltavelli á sjúkrahús. Sonurinn, Aiden, var að spila leik með Young Hoops U12 í Skotlandi og pabbinn að horfa á.

Þetta kom fram í nýju viðtali við rokkarann í fótboltatímaritinu FourFourTwo. Stewart sagði son sinn hafa verið orðinn bláan í framan og meðvitundarlausan þegar sjúkraliðar fluttu hann á brott með sjúkrabíl af leikvanginum.

„Við héldum að strákurinn minn hefði fengið hjartaáfall,“ sagði Stewart í útvarpinu án þess að gefa upp hvenær atvikið átti sér stað. Hann var farinn að blána í andláti og orðinn meðvitundarlaus þar til hann róaðist. Þetta var skelfilegt, en þetta reyndist síðan vera kvíðakast. Strákurinn vildi standa sig vel fyrir pabba sinn og lagði of hart á sig.“

„Annar strákur féll aftur á bak og á höfuðið í leiknum, hann er enn ekki „kominn til baka.“ Í öll þau skipti sem ég hef horft á fótbolta var þetta í fyrsta sinn sem tveir sjúkrabílar hafa verið kallaðir til.“

Læknar sögðu síðar að Aiden hafi fengið kvíðakast, en ekki hjartaáfall, Stewart til mikils léttis.

Heimild.

One Comment on “Ungur sonur Rod Stewart fluttur meðvitundarlaus og blár af fótboltavelli”

Skildu eftir skilaboð