Nýir skattar og nýjar takmarkanir

frettinJón Magnússon, LoftslagsmálLeave a Comment

Eftir Jón Magnússon hæstaréttarlögmann:

Sl. fimmtudag komust samningamenn Evrópusambandsins að samkomulagi um að innleiða kolefnis landamæra skatt. Skatturinn á að leggjast á vörur sem fluttar eru til Evrópu frá löndum, sem eru ekki eins loftslagsgalin og Evrópusambandið. Skattlagningin er nýjasta dæmi þess hvernig frelsið er stöðugt takmarkað og meiri hömlur lagðar á þegar regluverk heildarhyggju  sósíalískra hugmynda nær fótfestu.

Kolefnisskattar sem Evrópusambandið hefur lagt á fyrirtæki í Evrópu dregur úr samkeppnishæfni þeirra og hækkar vöruverð til neytenda. Þegar það liggur svo fyrir,að önnur lönd eru ekki jafnkolefnisgalin og Evrópusambandið, þá verður að gera eitthvað til að rétta hlut evrópskra samkeppnisfyrirtækja og þá dettur kommissörunum í Brussel aldrei neitt annað í hug en nýir skattar.

Í fréttum í Sunnudagsblaði Financial Times segir frá því að norskir milljónamæringar flýi nú landið í umvörpum vegna sérstaks auðlegðarskatts sem sósíalistarnir í Noregi hafa lagt á. Ofurríka fólkið getur þetta og komið sér hjá óhóflegri skattpíningu, en það getur millistéttin og hinn almenni neytandi ekki.

Ríkisstjórnir sósíalista hafa aldrei skilið það, þ.m.t. ríkisstjórn Íslands, að ofurskattar á framtak einstaklinganna leiða alltaf til verri lífskjara og frelsisskerðingar.

Skildu eftir skilaboð