Biblía loftslagsspámanna kólnar í snjóbyl

frettinJón Magnússon, PistlarLeave a Comment

Eftir Jón Magnússon hæstaréttarlögmann:

Vetrarsólstöður og nú fer daginn að lengja sem betur fer. 

Þetta er búinn að vera óvenjulegur tími í desember með endalausu frosti, hörkusnjókomu og byl. Fyrir nokkrum dögum stakk umhverfisráðherra stóru fragtskipi í samband við rafmagn og sagði það merkan áfanga til að vinna gegn hnattrænni hlýnun. Þetta voru heldur betur áhrínsorð því að kuldamet var slegið í Reykjavík tveimur nóttum síðar, en þá mældist kuldinn í Víðidal í Reykjavík tæpar 23 gráður.

Þrátt fyrir kulda og fannfergi þá raskar það ekki ró þeirra sem hafa ánetjast loftslagstrúboðinu. Samkvæmt þeirra Biblíu eru miklir hitar, kuldar,þurrkar, rigningar sem og allar náttúruhamfarir merki um hnattræna hlýnun af mannavöldum. Þeir sem vilja nálgast málið af rökhyggju eiga því aldrei möguleika gagnvart þessu ofsatrúarfólki, sem neitar almennt að ræða málið en vísar í að yfir 90% vísindamanna séu á sama máli og þá þarf ekki frekari vitnana við eða hvað?

Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir fréttamaður á RÚV hefur jafnan kallað til pöddufræðinginn, formann loftslagsráðs Íslands, þegar miklir hitar eru einhvers staðar í veröldinni til að fá hann til að vitna um það með því að spýta út úr sér á milli samanbitinna tannanna hvílík heimsendavá vofi yfir okkur vegna þess að við keyrum um á bensínbílum og förum í ferðalög. En Jóhanna kallar hann ekki til núna.  

Svo merkilegt sem það kann að vera, þá er náttúran söm við sig og það birtir og dimmir og hlýnar og kólnar án þess að við getum mikið gert í því. 

En við getum alla vega fagnað því að nú er botninum náð hvað skammdegið varðar og nú fer daginn að lengja. Vonandi fylgir því líka meiri hiti og betra veður. Það er heldur betur kominn tími til.

Skildu eftir skilaboð