Þegar rykið er sest stendur bókin eftir

frettinGeir Ágústsson, Pistlar1 Comment

Eftir Geir Ágústsson:

Íslensk umræðuhefð er um margt sérstök. Hver sem er getur skrifað opna grein í nánast hvaða fjölmiðil sem er og fá dæmi um að fjölmiðill hafni grein vegna innihalds hennar. Bókaútgáfa er lífleg. Fjölmiðlar eru tiltölulega margir og sumir reyna að skera sig úr í samkeppninni með því að bjóða upp á álitsgjafa sem fá ekki áheyrn hjá öðrum, og dugir í því samhengi að nefna að sömu raddir heyrast ekki í Kastljósi RÚV og viðtalsþáttum Útvarps Sögu. Landið er fámennt og því mikið um endurtekningar þegar kemur að vali á spekingum til að gefa álit sitt hjá stærstu miðlunum. Auðvelt er að hrekja menn af sjónarsviðinu með háværum ásökunum enda boðleiðir stuttar – nokkur hundruð „likes“ á samfélagsmiðlum duga til að svipta menn lífsviðurværinu vegna einfaldra ásakana sem reynast margar hverjar ekki standast nánari skoðun og hvað þá lögreglurannsókn.

Fjölmiðlar sem málpípur stjórnvalda

Á veirutímum kom bæði hið versta og besta fram í íslenskri umræðuhefð. Fréttamiðlar tóku sér stöðu fjölmiðlafulltrúa fyrir eitt tiltekið embætti með einn tiltekinn ásetning – þann að hindra veirusmit. Vegna fámennis féllu flestir á hnén þegar þessi boðskapur var boðaður enda vildi enginn hætta á að vera kallaður samsæriskenningasmiður, ömmumorðingi eða kærulaus andstæðingur samstöðunnar. Andófsraddir fengu þó yfirleitt aðgang að greinasíðum fjölmiðlanna og gátu þar komið sínum skoðunum áleiðis. Samfélagsmiðlar náðu til einhverra. En heilt á litið var keyrslan á eitt sjónarmið slík að það tók nálægt því 2 ár að sætta samfélagið á að ein veira á ekki að ráða ferðinni. Lífið snýst um meira en að forðast smit.

Annað dæmi um hið besta og versta í íslenskri umræðuhefð er bankahrunið svokallaða. Á tímabili var bara einn sannleikur á ferð: Sá, að stjórnvöld og bankastjórar á tímum bankahrunsins hafi borið ábyrgð á því. Gott og vel, stjórnvöld eru ábyrg fyrir því sem leiðir af ákvörðunum þeirra, en ýmislegt hefur þó komið fram á síðari tímum sem bendir til að heykvíslarnar hafi bent á rangan sökudólg, sem mögulega var enginn í íslensku samfélagi. Þar kemur bókin til bjargar. Fjölmargar bækur hafa komið út í kjölfar bankahrunsins sem afhjúpa margt sem áður hafði dvalið þögult í huga aðila sem sáu með eigin augum hvað var að gerast og hvað fékk áheyrn. Nýlegt dæmi er bók prófessors Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um Landsdómsmálið gegn þáverandi forsætisráðherra, Geir H. Haarde. Ljóst er að reiði almennings beindist að röngum aðilum og að aðrir hafi nýtt tækifærið til að koma höggi á pólitíska andstæðinga. Annað nýlegt dæmi er bók Lárusar Welding, þáverandi bankastjóra Glitnis banka, og hans vangaveltur í tengslum við réttarríkið, ákvarðanir yfirvalda og persónulegar áskoranir í áralangri stöðu sakbornings í sakamáli án ills og hvað þá glæpsamlegs ásetnings.

Uppgjörið birtist í bókum

Þegar rykið hefur sest mun það sama eiga sér stað um veirutíma og bankahrunstíma: Bækur koma út. Þær munu opna á nýjar túlkanir, óvæntar upplýsingar og vafasaman ásetning ýmissa aðila. Þær munu draga saman þær skoðanir sem fengu mögnun í gegnum fjölmiðlana og aðrar sem fengu vissulega að koma fram á ýmsan átt en voru hunsaðar enda féllu þær ekki að ritstjórnarstefnu fjölmiðlafulltrúanna hjá hinum svokölluðu óháðu, hlutlausu og ríkisstyrktu fjölmiðlum. Þessar bækur munu benda á misræmið á milli áhættu vegna veiru og aðgerða gegn henni sem gengu á á Íslandi og víðast hvar annars staðar. Vegna fámennis, aðgengis að útgáfum og nægjanlegs áhuga almennings á að kaupa bækur um nýlega sögulega viðburði á Íslandi mun bókin standa eftir sem hráefnið í sagnfræðibækur framtíðar, þegar enn lengra verður liðið frá mistökum, ofstæki, hræðslu, þöggun og ritskoðun nútímans.

Greinin birtist fyrst á Krossgötum 3.1.2023

One Comment on “Þegar rykið er sest stendur bókin eftir”

  1. Þeir sem eiga mikið af fjármunum (illa fengnum í tilfelli Lárusar Welding) geta leyft sér að eyða þeim í að reyna að endurskrifa söguna þannig að þeir sjálfir komi út í jákvæðu ljósi. Fæstir þeirra sem urðu fyrir skaða af glæpum fjárglæframanna í Hruninu og aðdraganda þess geta leyft sér slíkan munað. Hef ekki trú á að almenningur kaupi afsakanir þessara peningakalla og stjórnmálamanna hverra græðgi og pólitískur rétttrúnaður (nýfrjálshyggja) leiddi til Hrunsins. Það er algjör veruleikafirring halda því fram að Hrunið hafi einungis átt sér stað vegna utanaðkomandi aðstæðna.
    Eitt aðalvandamál réttarríkisins, ásamt spillingu og vanhæfni, er að lögin eru oft á tíðum svo flókin og loðin að þeir sem hafa efni á að ráða sér her lögfræðinga til að leita uppi glufur í lagabókstafnum komast allt of oft hjá því að vera dæmdir fyrir afbrot sín. Þetta á algjörlega við varðandi Hrunið.
    Heyrði viðtal við Hannes Hómstein um daginn um Landsdómsmálið. Hann notaði m.a. þau rök gegn dómnum yfir Geir Haarde að hann hafi ekki ætlað sér að valda neinum skaða. Skiptir ekki máli – ef fólk í valdamiklum embættum gerir sig sekt um alvarleg afglöp verður það að sæta ábyrgð, jafnvel refsingu. Minni á að ein mistök hjúkrunarfræðings geta leitt til þess að viðkomandi er kærður fyrir manndráp.
    Er annars sammála fyrri hluta pistilsins.

Skildu eftir skilaboð