Ný heimildamynd með Evrópuþingkonunni Christine Anderson

frettinKvikmyndir1 Comment

Í lok desember sagði Christine Anderson þingmaður á Evrópuþinginu frá því að kvikmyndatökumaður hefði fylgt henni í nokkra mánuði á síðasta ári í störfum hennar á Evrópuþinginu. Útkoman er heimildarmyndin "Fighting for Freedom" eða „Barist fyrir frelsi“ sem hún mun setja í sýningu fljótlega.

Anderson hefur vakið gríðarlega athygli fyrir ötula frelsisbaráttu sína ásamt nokkrum öðrum þingmönnum Evrópusambandsins undanfarin misseri. Hún hefur verið óhrædd við að tjá sig um og upplýsa um einræðistilburði og spillingu hinna ráðandi afla hvort sem í hlut hafa átt stjórnmálamenn, embættismenn eða alheimsforréttindahópar

Á síðasta ári steig Anderson í ræðustól þegar forsætisráðherra Kanada, Justin Trudeau, heimsótti þingið og sagði hann vera til skammar. „Herra Trudeau, þú ert til skammar fyrir hvaða lýðræði sem er. Vinsamlegast hlífðu okkur við nærveru þinni, sagði Anderson“ Þar var þingmaðurinn að vísa til harkalegra viðbragða ríkisstjórnar Trudeau gegn „Frelsislestinni“ svonefndu, þar sem þúsundir kanadískra vörubílstjóra voru m.a. að berjast gegn þvinguðum „bólusetningum“.

Þá spurði Anderson varaforseta AstraZenecaIskra Reic, á fundi þingnefndar um Covid mál sl. haust, hver bæri ábyrgð á lyginni varðandi „bóluefnin,“ fyrirtækið eða ríkisstjórnir heims. „Hver laug, svaraðu bara þeirri spurningu, þakka þér fyrir,“ sagði Anderson við Reic.

Á Youtube síðu sinni hefur Anderson birt kynningarmyndband fyrir heimildarmyndina sem fylgir hér neðar.

Myndbandið hefst með orðum hennar: „Þetta snýst ekki lengur um vinstri eða hægri, þetta snýst um lýðræði og að verja lýðræðið og um fólkið gegn einhvers konar alheimsforréttindahópi eða einhverju slíku, það er þetta sem þetta snýst raunverulega um.“

One Comment on “Ný heimildamynd með Evrópuþingkonunni Christine Anderson”

  1. Hlakka til og vona að þið látið vita þegar myndin verður aðgengileg!

Skildu eftir skilaboð