Ertu nokkuð rasisti með fitufordóma?

frettinGeir Ágústsson, PistlarLeave a Comment

Eftir Geir Ágústsson:

Þeir spáðu engu rétt um fjölda spítalainnlagna og dauðsfalla vegna veiru.

Þeir spá engu rétt um þróun loftslagsins.

Þeir spá engu rétt um hungursneyðir, náttúruhamfarir og útrýmingu dýra.

Frá 2012:

no_ice

Ég var að horfa á mjög athyglisverðan fyrirlestur á málfundi félagasamtakanna Málfrelsis, sem stendur yfir í þessum rituðu orðum og má fylgjast með í streymi á heimasíðu vefmiðilsins Krossgötur (upptöku má sjá hér). Í þessum fyrirlestri er talað um vaxandi tilhneigingu okkar til að grípa til viðamikilla aðgerða (yfirleitt takmarkana á frelsi) til að koma í veg fyrir ólíklegan en voveiflegan viðburð.

Þannig leggja ýmis vestræn ríki nú allt kapp á að koma í veg fyrir eða minnka stórkostlega losun manna á koltvísýringi í andrúmsloftið með boðum og bönnum, sköttum og neyslustýringu því ef ólíklegar spár um hörmulegar breytingar á loftslagi Jarðar rætast þá hafa þær miklu alvarlegri afleiðingar í för með sér en allar aðgerðirnar.

Svipuð rök voru fyrir miklum inngripum og skerðingum yfirvalda í nafni veiruvarna.

Fyrirlesarinn bendir á að þetta sé mjög lokkandi hugsjón - að gera ráð fyrir hinu versta og grípa til mikilla aðgerða til að koma í veg fyrir það. Hún lokkar sérstaklega til sín vel stætt og menntað fólk, enda situr það hátt í siðferðislegum fílabeinsturnum sínum og finnur mögulega ekki fyrir sköttunum og skerðingunum.

En fyrirlesarinn bendir einnig á að það eru til margir aðrir ólíklegir en voveiflegir atburðir sem við gerum ekkert til að koma í veg fyrir. Við erum ekki að undirbúa Jörðina fyrir árás geimvera eða að stór loftsteinn lendi á Jörðina. Hvernig veljum við hvaða voveiflegu en ólíklega atburði á að koma í veg fyrir með ærnum tilkostnaði og frelsisskerðingum?

Góða fólkið segir sjálft að við veljum þá atburði sem bitna verst á fátækum og minnihlutahópum. Sértu á móti því vali ertu rasisti eða með fordóma. Hann nefndi sem dæmi samtökin People´s CDC í Bandaríkjunum - félagsskapur ýmissa spekinga sem vilja varanlegar sóttvarnaraðgerðir og ásakar alla andstæðinga sína um kynþáttahatur, fitufordóma og fáfræði. Sé á það bent að aðgerðirnar bitna einmitt verst á fátækum og minnihlutahópum þá er því einfaldlega ekki svarað.

Vinkona mín sagði mér um daginn að það þýddi ekki að lifa lífinu með endalausar áhyggjur og kallaði það heilsufarskvíða þegar maður veldur sér andlegu álagi yfir öllum mögulegum heilsufarsvandræðum. Slíkt gæti jafnvel leitt til líkamlegra vandræða. Þetta er víst vel rannsakað hugarástand. Mætti kannski segja að stefna stjórnvalda sé að stuðla að heilsufarskvíða? Og ætlar þú að taka við og þjást í kjölfarið?

Skildu eftir skilaboð