Ertu á leið í sólina?

frettinGuðrún Bergmann, HeilsanLeave a Comment

Eftir Guðrúnu Bergmann:

Hvort sem þú ert á leið á sólarströnd eða skíði upp til fjalla er gott að byrja á næstu vikum að taka inn Astaxanthin til að verja húðina fyrir geislum sólarinnar. Þetta frábæra bætiefni ver ekki bara húðina gegn geislum sólarinnar, heldur stuðlar það að jafnri og fallegri brúnku þegar hún skín á hana.

Ég kynntist þessu bætiefni fyrst fyrir rúmum fimmtán árum og hef notað það relgulega síðan, enda býr það yfir frábærum eiginleikum. Ef ég er á leið í sólarfrí byrja ég gjarnan að taka það inn svona 1-2 mánuðum fyrir brottför og tek það inn meðan ég er í sólinni.

VERNDAR HÚÐINA, VEITIR SÓLARVÖRN

Rannsóknir hafa sýnt[i] að Astaxanthin verndar stærsta líffæri líkamans, en það er húðin. Það bætir rakastig hennar, mýkt og teygjanleika og dregur úr fínum hrukkum, blettum og freknum – auk þess sem það örvar brúna litinn í húðinni.

Við sólbruna myndast bólgur í húðinni, en Astaxanthin fer inn í húðfrumurnar og dregur úr þeim skaða sem útfjólubláu geislarnir valda húðinni. Að auki verndar það húðina sérstaklega gegn frumudauða sem orsakast af útfjólubláum (UV) geislum sólarinnar.

Ólíkt sólkremum sem borin eru á húðina, blokkar Astaxanthin ekki UV geislana, þannig að það kemur ekki í veg fyrir að UVB geislarnir breytist í D–vítamín í húðinni. Það ver húðina einfaldlega gegn skemmdum. Gott er að taka Astaxanthin inn með mat, sem í er einhver fita (t.d. ólífuolía eða taka það samhliða Omega 3) því það er fituuppleysanlegt bætiefni.

UNNIÐ ÚR  ÞÖRUNGUM

Astaxanthin er unnið úr Haematococcus örþörungum, sem framleiða Astaxanthin til að vernda viðkvæma þörungana fyrir útfjólubláum geislum sólarinnar. Astaxanthin er eitt af karótínóíðunum, en það eru litarefni sem myndast í náttúrunni.

Astaxanthin er öflugt andoxunarefni með víðtæk heilsufarsleg áhrif. Ólíkt öðrum andoxunarefnum eins og beta-karótínI, zeaxanthini, E-, C- og D-vítamínum og seleníum, verður Astaxanthin aldrei að oxandi efni í líkamanum.

VIRKAR Á MÖRG KERFI LÍKAMANS

Auk þess að vera gott fyrir húðina er Astaxanthin öflugt og breiðvirkt andoxunarefni sem virkar vel á mörg kerfi líkamans og stuðlar meðal annars að heilbrigði augna, heila og hjarta.

Það hefur einnig reynst vel gegn hvers konar meltingarvandamálum, sykursýki, ýmsum meltingarsjúkdómum, lifrarsjúkdómum, ófrjósemi karla og nýrnabilun.

5 FRÁBÆRIR EIGINLEIKAR ASTAXANTHINS

Nokkur lykilatriði greina Astaxanthin frá öðrum karótínóíðum. Það er því eitt af þessum bætiefnum sem borgar sig að taka nokkuð reglulega. Þessi lykilatriði eru:

#1-VINNUR Á FRJÁLSUM STAKEINDUM

Líkt og önnur andoxunarefni, gefur Astaxanthin frá sér elektrónur sem gera frjálsar stakeindir hlutlausar. Frjálsar stakeindur eru oxandi efni sem hafa eyðileggjandi áhrif á vefi og líffæri líkamans. Stakeindirnar eyða upp flestum öðrum andoxunarefnum, en Astaxanthin býr yfir miklum birgðum, sem þýðir að það er virkara lengur – samanborið við önnur andoxunarefni.

Astaxanthinið helst líka óskaddað, sem þýðir að það eru engin efnaviðbrögð sem brjóta það niður, en slíkt gerist hjá flestum öðrum andoxunarefnum. Það ræður til dæmis við fleiri stakeindir í einu en bæði E- og C-vítamín, sem teljast þó nokkuð öflug.

 # 2-HÆGIR Á ÖLDUNARFERLINU

Einn af einstökum eiginleikum Astaxanthins er að geta varið bæði vatns- og fituuppleysanlega hluta líkamsfrumunnar. Karótínóíðin skiptast yfirleitt í vatnsuppleysanlega eða fituuppleysanlega hópa, en Astaxanthin tilheyrir hópi sem er mitt á milli og getur haft áhrif á bæði vatn og fitu.

Þetta þýðir að Astaxanthin sameindirnar geta haft áhrif á og þanið út himnu allra frumna og fljóta því ekki um í blóði okkar, heldur samlaga sig frumuhimnunni. Þetta á líka við um hvatberana (mítókondruna eða orkudreifingarhlutann) í frumum hjartans, sem er ein ástæða þess að Astaxanthin er svo gott fyrir hjartað.

Þar sem ástand hvatberanna (mítókondrunnar) skiptir miklu máli þegar við eldumst, er stuðningur við hvatberana í frumukjarnanum (mítókondrunni) eitt af því besta sem hægt er að gera til að hægja á öldrunarferlinu. 

#3-VERNDAR TAUGAFRUMURNAR

Astaxanthin fer í gegnum heilablóðþröskuldinn. Á þennan hátt verndar Astaxanthin taugafrumurnar[ii] og hægir á áhrifum aldurstengdrar heilabilunar og skynhreyfigetu.

Að auki hafa rannsóknir á dýrum sýnt að Astaxanthin getur dregið verulega úr þeim skaða sem fylgir heilablóðfalli.

#4-VELDUR EKKI OXUN

Einn af lykileiginleikum Astaxanthins er að það getur ekki valdið oxun. Mörg andoxunarefni, valda oxun frekar en andoxun, þegar ákveðið mikið magn af þeim er til staðar.

Þess vegna er ráðlagt að taka ekki of mörg andoxandi bætiefni í einu. Þar sem astaxanthin veldur ekki oxun, jafnvel þótt mikið sé af því í líkamanum, er það bæði öruggara og öflugra andoxunarefni en mörg önnur.

#5-ASTAXANTHIN ER ÖFLUGT GEGN SÍÞREYTU

Þeir sem þjást af síþreytu[iii] ættu að skoða að taka inn Astaxanthin. Það kemur góðu jafnvægi á orku líkamans og veitir aukið úthald. Þess vegna virkar það vel á þá sem komnir eru með útbrunaeinkenni vegna vinnu eða álags.

Hreint náttúrulegt Astaxanthin eykur einnig úthald, styrk og bætir árangur líkamans almennt. Þar sem það stuðlar að skjótu jafnvægi líkamans eftir æfingar, er það talið vera mjög gott fyrir íþróttamenn sem vilja ná sem bestum árangri í því sem þeir eru að gera.

Ef þér fannst þessi grein áhugaverð deildu henni þá endilega með öðrum.

Þér er velkomið að skrá þig á PÓSTLISTANN minn til að fá reglulega sendar greinar um sjálfsrækt, andleg málefni, stjörnuspeki og náttúrulegar leiðir til að styrkja heilsuna.

Neytendaupplýsingar: Astaxanthin frá Dr. Mercola fæst hjá Mamma Veit Best á horni Dalbrekku og Auðbrekku í Kópavogi og á www.mammaveitbest.is

Heimildir:

[i] https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/34581210/

[ii] https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/30121358/

[iii] https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/29495607/

Skildu eftir skilaboð