Biden svaraði ekki hvort Kína yrði látin sæta ábyrgð vegna Covid

frettinCOVID-19, Erlent, StjórnmálLeave a Comment

Christopher Wray, forstjóri FBI, sagði frá því nýlega að uppruni COVID-faraldursins væri „líklega leki frá rannsóknarstofu í Wuhan.“ Joe Biden forseti hrökklaðist skyndilega í burtu frá blaðamönnum sem stóðu fyrir utan Hvíta húsið. Þar var hann var spurður að því hvort hann ætli að draga Kína til ábyrgðar.

Þann 3. mars nálgaðist forsetinn blaðamennina á leið frá Hvíta húsinu að þyrlu forsetans.

Þegar hann var kominn í heyrnarfæri við blaðamenn spurði Iris Tao, blaðamaður NTD, forsetann: „Varðandi COVID-upprunann, munt þú draga Kína til ábyrgðar?“

Biden virðist hafa brugðið við spurninguna sem hann vildi ekki svara og rétti upp báðar hendur. Hann virtist pirraður, snéri sér við og gekk í átt að þyrlu sinni,“ samkvæmt upplýsingum frá Hvíta húsinu.

Skildu eftir skilaboð