Krabbameinstilfellum fjölgað mikið síðan bólusetningaherferðir hófust

frettinCovid bóluefni, Innlent1 Comment

Óvenju mörg krabbameinstilfelli hafa komið upp eftir að Covid bólusetningaherferðir hófust. Þetta var meðal þess sem fram kom í þætti Arnþrúðar Karlsdóttur og Guðmundar Karls Snæbjörnssonar læknis á Útvarpi Sögu.

Í þættinum var farið yfir stöðu mála hér-og erlendis en í Bandaríkjunum hefur forsetinn nú lýst því formlega yfir að faraldurinn sé yfirstaðinn. Hér heima hefur að undanförnu aftur á móti verið að gefa fólki fimmtu sprautuna af því sem upphaflega var sagt að ætti aðeins að vera ein sprauta. Auk þess svar sagt að sú sprauta ætti að koma í veg fyrir smit. Annað kom þó í ljós.

Guðmundur Karl segir sérkennilegt að hér heima sé enn verið að ráðast í slíkar bólusetningar og benti á að samkvæmt vísindalegum könnunum sé orðið löngu ljóst að þær verndi engan, heldur auki smitin, og afleiðingarnar séu aðeins neikvæðar.

„svo mér er það algjörlega óskiljanlegt hvers vegna verið sé að bólusetja ennþá nema þá að markmiðið sé það sem þú spurðir um áðan hvort tilgangurinn sé að fækka fólki“segir Guðmundur.

Guðmundur Karl segir að fyrir utan þær alvarlegu aukaverkanir sem hefur verið rætt um erlendis þá séu nú að koma fram upplýsingar um að óvenju mörg krabbameinstilfelli séu að greinast eftir að sprautuherferðirnar hófust.

Hann segir tilfellin bæði vera hjá fólki sem áður hafði verið með krabbamein en verið í bata og verið í svonefndu fimm ára eftirliti. Þar hafi tilfelli verið að taka sig upp að nýju en eins eru að koma upp ný tilfelli sem kölluð eru "turbo cancer." Um er að ræða hraðvaxta krabbamein sem komin eru á fjórða stig á mjög skömmum tíma og ekki hægt að bjarga þeim sem sem þau fá.

„menn hafa aldrei séð svona mikla aukningu og ég myndi krossa mig í bak og fyrir ef það yrði ekki meira en 50% aukning miðað við það sem við erum að sjá núna hjá kollegum mínum erlendis.“ segir Guðmundur.

Guðmundur Karl segir að tölur yfirvalda þar sem andlát eru sögð vera vegna Covid gefa ranga mynd af því sem í raun er að gerast. Hann bendir á að í stórum samfélögum hafi andlátin orðið flest hjá heilbrigðu fólki á aldrinum 0-40 ára, fólki sem Covid hefur engin sérstök áhrif á, frekar en venjuleg flensa. Það sem þessi hópur átti sameiginlegt eru Covid sprautur. Fólk sé þannig blekkt með það að umframdauðsföll megi rekja til Covid.

Hlusta má á þáttinn hér.

One Comment on “Krabbameinstilfellum fjölgað mikið síðan bólusetningaherferðir hófust”

Skildu eftir skilaboð