Verðlaunakokkurinn Jack Zonfrillo lést skyndilega 46 ára

frettinErlentLeave a Comment

Skoski verðlaunakokkurinn Jock Zonfrillo lést skyndilega, 46 ára að aldri. Hann var þekkt­ast­ur fyr­ir að vera dóm­ari í MasterChef-þátt­unum í Ástralíu.

Zonfrillo vann á þekktum veitingastöðum um allan heim áður en hann opnaði sinn eigin stað í Ástralíu. Zonfrillo fannst látinn í húsi í Melbourne þegar lögregla fór þangaði í eftirlit snemma í morgun. Lögreglan í Viktoríu sagði að ekkert sak­næmt hafi átt sér stað. Hann lætur eftir sig eiginkonu og fjögur börn.

Andlát hans var staðfest af útvarpsstöðinni Network 10 daginn sem frumsýning á MasterChef-þáttunum fyrir þetta ár áttu að fara í loftið.

BBC sagði frá.

Skildu eftir skilaboð