Sitja í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á andláti ungrar konu á Selfossi

frettinInnlent3 Comments

Samkvæmt upplýsingum sem Fréttinni hafa borist þá eru mennirnir tveir sem sitja í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á andláti ungrar konu á  Selfossi báðir Íslendingar, annar þeirra er fæddur 1997 og hinn 1998. 

Lögreglan á Suðurlandi rannsakar nú hvernig andlát konunnar bar að á fimmtudaginn í síðustu viku. Konan fannst látin í heimahúsi, en stjúpbræðurnir hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 5. maí vegna rannsóknar málsins. Þeir hafa báðir kært gæsluvarðhaldið til Landsréttar.

Systir konununnar skrifaði hjartnæma færslu á facebook um andlát systur sinnar og í  sam­tali við DV seg­ir hún það fjarri sann­leik­an­um að syst­ir henn­ar hafi verið fík­ill, eins og ein­hverj­ir hafi haldið fram, og finnst mikilvægt að það sé á hreinu.

Konan var 28 ára gömul, og heitir Sofia Sarmite Kolesnikova. Hún var ókvænt og barnlaus.

Uppfært: 

Að ósk aðstandenda þá hafa nöfn mannanna verið tekin út.

Sofia Sarmite Kolesnikova

3 Comments on “Sitja í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á andláti ungrar konu á Selfossi”

  1. Auðvitað Íslendingar! Það er að gerast það sama á Íslandi og annars staðar. Útlendingar (litlu hatta karlar) eru að taka yfir. Sem betur fer á ég ekki börn, því hvíti maðurinn er aumingi, sem lítur niður å þá sem hafa greind til að sjá hvað er að gerast.

  2. Ath. að þeir hafa ekki verið dæmdir, rannsóknin stendur yfir.

  3. Mögulega kaldrifjaðir morðingjar.

    Sem betur fer lifum við í hemi þar sem fæstir vilja hafa morð á samviskunni. En því miður lifum við í heimi þar sem margir þéna á þjáningum annarra.

    Gæti verið að þessi stúlka hafi verið að neyta örvandi efna og hjartað hennar hafi gefið sig? Kannski með veikt hjarta vegna rað-bólusettninga?

    Algjör harmleikur fyrir alla tengda aðila.

    Leiðinlegt að sjá þennan miðil leggjast svona lágt.

    Sá yðar, sem syndlaus er, kasti fyrstur steini á hana.

Skildu eftir skilaboð