Umferðatafir og lokanir á höfuðborgasvæðinu vegna fundar Evrópuráðsins

frettinInnlentLeave a Comment

Leiðtogafundur Evrópuráðsins verður haldinn í Reykjavík dagana 16. til 17. maí 2023. Ætla má að fundurinn hafi nokkur áhrif á daglegt líf íbúa á höfuðborgarsvæðinu þessa daga. Af öryggisástæðum verða götur í kringum Hörpu lokaðar fyrir umferð ökutækja á meðan á fundinum stendur en hægt verður að fara um svæðið gangandi og á hjóli. Þetta á hins vegar ekki við um svæðið næst Hörpu, sem verður lokað almenningi.

Einnig má gera ráð fyrir umferðartöfum um allt höfuðborgarsvæðið vegna aksturs sendinefnda í lögreglufylgd til og frá Keflavíkurflugvelli og Reykjavíkurflugvelli á þessum dögum. Áhrifin verða hvað mest síðdegis á þriðjudeginum og miðvikudeginum.

Um 50 einkaþotur verða á Reykjavíkurflugvelli í kringum fundinn og er það mesti fjöldi af einkaþotum sem verið hefur á vellinum.

Hér neðar má sjá kort af svæðinu sem verður lokað fyrir umferð á meðan á fundinum stendur. Gagnvirkt yfirlitskort sem sýnir takmarkanir á aðgengi og áhrifasvæði banns við drónaflugi má nálgast hér.

Upplýsingar um öryggisgæslu vegna leiðtogafundarins má finna á vef lögreglunnar.

Íbúar sem eiga lögheimili og bílastæði innan svæðisins geta haft samband á [email protected]. Íbúum innan lokunarsvæðis er einnig bent á þjónustusímann 411 11 11, vefspjall og ábendingavef Reykjavíkurborgar. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Skildu eftir skilaboð