Flugsveit breska flughersins sinnir loftrýmisgæslu vegna leiðtogafundar í Reykjavík

frettinInnlentLeave a Comment

Í tengslum við leiðtogafund Evrópuráðsins sem haldinn verður í Reykjavík dagana 16.-17. maí sinnir flugsveit breska flughersins loftrýmisgæslu við Ísland. 

Loftrýmisgæslan stendur yfir dagana 15.-19. maí.

Um er að ræða tvíhliða fyrirkomulag loftrýmisgæslu milli Íslands og Bretlands, með stuðningi stjórnstöðvar Atlantshafsbandalagsins á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og aðkomu flugherstjórnar Atlantshafsbandalagsins í Norður-Evrópu.

Þetta kemur fram á  vef Stjórnarráðsins.

Skildu eftir skilaboð