Kjánar stjórna Íslandi, glópar við völd í Evrópu og krimmar í Ameríku …

frettinHallur Hallsson, Stjórnmál4 Comments

Hallur Hallsson skrifar:

Hinn nöturlegi raunveruleiki sem blasir við íslenskri þjóð er að kjánar eru við völd í Stjórnarráðinu. Enginn í valdastól hefur snefil af þekkingu á sögu mannkyns. Glópar stjórna Evrópu frá Brussel þar sem þeir stíga trylltan Hrunadans. Krimmar stýra Ameríku með petródollar í kviksyndi gjaldfalls sem markar endalok heimsvaldatíðar Vesturveldanna. Kata og Dísa hlýða húsbændum sínum, Alþingi er stýrt með tilskipunum frá Brussel; Evrópusambandinu og Nato. Hatursfrumvarp Kötu er árás á frelsi og Dísa kastar fullveldi Íslands á bálið með því að evrópskar tilskipanir verða æðri íslenskum lögum. Þeir sem tilskipanir senda í samræmi við bókun 35 sitja í Brussel. Þeir voru settir í embætti að baki luktum dyrum af nafnlausum skuggastjórnendum í kjallara Berlaymont.

Kjánar tortíma íslenskri þjóð

Seníll Joe Biden babblandi vitleysu minnir á söguna um Neró með fiðluna þegar Róm brann. Krimminn Biden er með kolsvarta ferilskrá situr í skjóli amerískrar hermaskínu; American-Military-Complex sem rændi völdum í Washington 2020; Coup d’Etat. Nato er valdatæki glópa sem stefna að heimsyfirráðum; One-World-Government boðuð af Klaus Schwab í Davos útfærð af Sameinuðu þjóðunum. Okkar kjánar hafa ekki andmælt alræðisvaldi sem til stendur að færa WHO Alþjóða heilbrigðisstofnuninni. Markmið eru skýr: Þú munt ekkert eiga og verður sæll; You’ll own nothing and be happy. Endurstilling hinna ríku; The Great Reset útrýmir þjóðríkjum, útrýmingu þjóða og þar innifalin tortýming íslenskrar þjóðar; íslenskrar menningar og tungu.

Kennedy og MacGregor

Á dögunum ræddu Robert F. Kennedy og Douglas Macgregor ofursti um Úkraínudeiluna og aðdraganda. Kennedy er í framboði gegn Joe Biden sem forsetaefni demókrata 2024. Hann er höfundur The Real Anthony Fauci: Bill Gates, Big Pharma and the Global War on Democracy. Kennedy er bróðursonur John F. Kennedy forseta 1961-63 sem var skotinn til bana í Dallas, Texas. Robert kveður CIA á bak við morðið á frænda sínum. Faðir hans, Robert Kennedy var skotinn til bana í Los Angeles þegar hann fagnaði sigri í prófkjöri. Hann hefði orðið forsetaframbjóðandi demókrata 1968. Robert og John F. Kennedy jr. voru þremenningar. John jr. fórst með voveiflegum hætti sumarið 1999 þegar flugvél hans hrapaði undan ströndum Víngarðs Mörthu; Martha‘s Vineyard. Líkum, eiginkonu og mágkonu var varpað í Atlantshafið úr tundurspilli. John jr. naut fádæma alþýðuhylli, kallaður Krónprins Ameríku. Hann hafði komið til Íslands sumarið 1997, róið kajak um Jökulfirði. Nokkrum vikum síðar dó Díana prinsessa í voveiflegu bílslysi í París. Hún naut fádæma alþýðuhylli, kölluð Prinsessa fólkins. Orðrómur var um að John jr. hygðist bjóða sig fram til öldungadeildar fyrir New York  árið 2000. Sætið féll í skaut Hillary Clinton. Macgregor er kunnasti núlifandi skriðdrekaforingi Ameríku, gagnrýninn á Endalausar styrjaldir Pentagon. Macgregor var í Flóabardaga og á Balkanskaga. Áhugavert viðtal á Red Pill sem ég læt fylgja; Úkraína þurrkuð út. Ukraine being wiped out.

Valdarán CIA í Kænugarði

Macgregor bendir á blóðugt valdarán CIA í Kænugarði 2014. Í kjölfarið hafi Kænugarður farið með blóðugu stríði á hendur eigin þegnum í Austur-Úkraínu; Rússum í Donbass og Luhansk. Pútin hafi tekið Krímskaga til að koma í veg fyrir að Sevastopol yrði amerísk flotastöð. Árið 1954 hafði Nikita Krústsjov „gefið“ sovétlýðveldinu skagann sem hafði verið hluti Rússlands síðan 1783. Í friðarviðræðum í Minsk í Hvíta-Rússlandi hafi Rússar fallist á að Donbass og Luhansk yrðu innan Úkraínu þar sem réttindi rússneskra íbúa væru tryggð; eigið tungumál og menning. Friðarviðræður í Minsk leiddu til Minsk I og II sem Bretar, Frakkar og Þjóðverjar gengust í ábyrgð fyrir. Fyrir liggur yfirlýsing Angelu Merkel kanslara að Vesturveldin hafi svikið Minsk I og II til að gefa Nato tíma til að byggja upp úkraínskan herafla. Það var svikalaust gert. Árið 2022 var úkraínski herinn orðinn sá öflugasti í Evrópu vestan Rússlands. Hernum hefur nú verið gereytt. Kennedy og Macgregor fullyrða að 300 þúsund Úkraníar séu fallnir síðan 24. febrúar 2022, 30 þúsund Rússar. Í Stalingrad féllu allt að 250 þúsund þýskir hermenn og 100 þúsund teknir til fanga. Zelinskiy hafi gert sömu mistök í Bakhmut 2022-23 og Hitler í Stalíngrad 1941-43; blóði úkraínskra og þýskra hermanna var fórnað í brjálæði

4 Comments on “Kjánar stjórna Íslandi, glópar við völd í Evrópu og krimmar í Ameríku …”

  1. ,,Markmið eru skýr: Þú munt ekkert eiga og verður sæll; You’ll own nothing and be happy.“

    Líf, frelsi og eignir eru forsenda farsæls mannlífs, að mati þeirra sem lögðu grunn að hinu opna samfélagi borgaranna fyrir bráðum 250 árum.

    Af hverju eignir?

    Af því þær tryggja líf og frelsi. Án þeirra væri úti um hvort tveggja.

  2. Loksins kom einhver með réttar upplýsingar um þessi mál. Vesturlandabúar eru núna meira og minna heilaþvegnir með falsfréttum. Ég sagði eitt sinn að þessi strengjabruða Zelinskiy væri mjög hættulegur maður. Hann vill ekki semja um frið. Hvað ætlar hann að fórna mörgun ungum mönnum á besta aldri. Það er herskilda í Ukrainu. Þeir senda sína bestu drengi og menn út í dauðan.

  3. Kjánar stjórna íslandi, vanhæfni er víða í þjóðfélaginu, í stjórnsýslu, í heilbrigðisherfinu, hjá bæjarfélögum, í seðlabankanum, í háskólanum, út um allt þjóðfélag er vanhæft fólk, það hæfa flytur úr landi.

  4. Það sorglega við þetta allt saman er að íslenskir ráðamenn/konur falbjóða sig en hafa engin áhrif á alþjóðavetvangi vegna smæðar íslands. Og gera sér ekki grein fyrir að þeir/þær eru hafðar að fíflum í proxi stríði vestursins USA/UK/EU gegn Rússum/Kína/Iran þar sem úkranískum ríkisborgurum er fórnað. En austrið ber jafn mikla ábyrgð á þessu stríðsbrölti sem snýst um efnahag, auðlindir og völd en ekki fólk. Eina vonin fyrir mannkinið er breytt heimsmynd í likingu við það sem The Schiller Institute er að berjast fyrir vegna þess að hugsandi fólk sér hvert þetta stefnir allt saman.

Skildu eftir skilaboð