Eva Hauksdóttir verður lögmaður Kristjáns Hreinssonar

frettinInnlentLeave a Comment

Samkvæmt heimildum DV hefur Kristján Hreinsson skáld og rithöfundur ráðið Evu Hauksdóttur sem lögmann sinn til að gæta hagsmuna hans í máli gegn Endurmenntun Háskóla Íslands.

Það var Jóhanna Rútsdóttir, náms- og þróunarstjóri Endurmenntunar, sem sagði Kristjáni upp störfum. Jóhanna sagði Kristjáni símleiðis að vegna fréttar Mannlífs um skrif Kristjáns yrði Endurmenntun að láta hann hætta störfum.

DV segist hafa haft samband við Jóhönnu í gær og reyndi árangurslaust og ítrekað að fá hana til að tjá sig um málið. Svör hafa ekki borist. Fréttin hefur einnig sent og ítrekað póst til rektors Háskóla Íslands, Jóns Atla Benediktssonar, með nokkrum spurningum, sem ekki hefur verið svarað.

Í pistlinum sem Mannlíf sagði frá skrifaði Kristján meðal annars:

„Ég segist hafa fæðst í röngum líkama. Ef mér finnst ég vera unglingsstúlka á ég þá að fá samþykki samfélagsins – án tillits til aðstæðna? Ef ég segist vera blindur, á ég þá að fá að vera blindur? Ef ég segist vera svertingi, eiga þá allir að virða mig sem slíkan? Ef ég segist vera lamaður á ég þá að fá hjólastól?....Aumingjavæðingin er hættuleg. Umburðarlyndið er skaðlegt þegar kemur að viðurkenningu duttlunga og komplexa. Við erum í raun og veru að svipta fólk rétti til mannsæmandi lífs með því að sýna tvöfalt siðgæði í formi hins falska samþykkis...Samfélagið er að bregðast með því að sýna öryggisnet sem er fullkomlega glatað. Við ýtum undir fordóma með því að taka þátt í vitleysunni. Hið versta við öll þessi minnihlutaréttindi er að þau skapa fordóma og gera í öllum tilvikum illt verra. Ástæðan er sú að öll þessi svokallaða barátta er reist á viðurkenndri heimsku, fölskum forsendum og gagnkvæmum misskilningi.“

Kristján tekur fyrir að hafa ráðist á transfólk en sagðist hafa verið að gagnrýna umræðuhefðina:

„Fólk hefur ákveðið að skilja orð mín sem árás á tiltekinn hóp. En í þeirri árás hef ég engan þátt tekið. Ég ber engan kala til nokkurs manns. Ég hef ekkert á móti neinum hópum. Transfólk er í mínum huga allt hið besta fólk. Ég hef akkúrat ekkert út á réttindabaráttu eins né neins að setja. Reyndar er ég að sýna öllu fólki stuðning með því að reyna að draga umræðuna upp úr hjólförum heimskunnar. Ég skal aftur á móti þykja skömm fyrir að benda á þá staðreynd að umræðan er á villigötum!“

Nemendum Endurmenntunar boðin inneign

Í frétt DV segir að stuttu eftir símtal Jóhönnu þar sem hún sagði Kristjáni upp fengu nemendur hans á ritlistarnámskeiðinu tölvupóst frá Endurmenntun þar sem þeim var boðin inneign í öðrum námskeiðum:

„Kæri þátttakandi á námskeiðinu Skáldsagnaskrif.

Okkur þykir leitt að tilkynna þér að vegna óviðráðanlegra aðstæðna fellur námskeiðið niður í kvöld og ekki verða fleiri tímar á þessu námskeiði. Námskeiðsgjöld vegna námskeiðsins verða að fullu felld niður og endurgreidd. Það er ósk okkar hjá Endurmenntun að við sjáum þig sem oftast á námskeiðum í framtíðinni og viljum gefa þér 10.000 kr. inneign sem þú getur notað upp í námskeið að eigin vali. Næst þegar þú skráir þig á námskeið hjá okkur getur þú skrifað í athugasemd að þú viljir nota inneignina.“

Vill ljúka námskeiðinu

Kristján Hreinsson hefur óskað eftir því að fá að ljúka námskeiðinu, nemendum að kostnaðarlausu. Hann sagðist gera það án tengingar við Endurmenntun HÍ. Halla Jónsdóttir endurmenntunarstjóri sagðist svara erindinu á fimmtudag.

Skildu eftir skilaboð