Fylgdarlausu hlaupastrákarnir

frettinInnlent, Jón Magnússon4 Comments

Jón Magnússon skrifar:

Yfir 40 hlaupastrákar komu til landsins og sögðust vera á aldrinum 15-18 ára til að vera flokkaðir sem fylgdarlaus börn. Ekki fer fram aldursgreining á þeim, vegna vinstri slagsíðu löggjafarinnar. 

Þeir koma í þeim eina tilgangi að troða sér inn á kerfið á fölskum forsendum til að sækja um að fjölskyldusameiningu og þá kemur stórfjölskyldan 20 manns eða fleiri. Ekki er krafist DNA rannsókna til að kanna skyldleika eins og í Noregi. 

Vaskur lögreglustjóri á Suðurnesjum Úlfar Lúðvíksson kemur auga á vandann og segir að hælisleitendakerfið sé misnotað eins og annað í velferðarríkinu. Hvað ætlum við lengi að láta haf okkur að fíflum?

Hvað er þá til ráða? Vísa þeim öllum úr landi á flugvellinum þar sem þeir koma frá öruggum löndum og enginn þeirra að sækja um alþjóðlega vernd hér á grundvelli eigin þarfa. 

Við getum haldið áfram að láta hafa okkur að fíflum og flytja inn fátækt, örbirgð og framtíðarvandamál eins og framkvæmdastjóri Fjölskylduhjálparinnar bendir réttilega á í viðtali í Mbl. Til að komast hjá því er um þrjá valkosti að ræða í kosningunum á laugardaginn. Kjósa Sjálfstæðisflokk, Flokk fólksins eða Miðflokkinn (nema í Reykjavík norður þar sem open border frambjóðandi er í 2. sæti).

Vilji fólk ná tökum á húsnæðisvandanum og  fátæktarvandanum þá þarf snör handtök en ekki vettlingatök Viðreisnar og Samfylkingar.

4 Comments on “Fylgdarlausu hlaupastrákarnir”

  1. Ástæðan fyrir því að Miðflokkurinn fær ekki mitt atvkæði er að þeir sendur Arnar Þór í burtu en buðu Jakob Frímann Magnússyni annað sæti í Reykjavík Norður .. Vel gert Miðflokksmenn…

  2. Jón Magnússon hvernig er hægt að kjósa XD þegar það hefur verið á hans vakt að flóðgátt af hælisleitendum hefur komið hingað og kostað okkur tugi milljarða á ári að halda þessu liði uppi. Ekki bara það heldur hefur XD ýtt Íslandi enn lengra inn í deilu Úkraníumann/Globalista sem er enn í fullum gangi þökk sé vopnasalanum Þórdísi Kolbrúnu. Guðlaugur Þór ætlar að ofurselja sig og íslenskuþjóðinni í vindmyllu svikamylluna þegar vitað er að þær virka ekki og Norðurlöndin eru að gefast upp á þeim. Nei Jón! Þú gætir ekki borgað mér nógu mikið til að kjósa þennan hryllingsflokk.

  3. Á bágt með að trúa því að landinn sé svona svakalega heimskur upp til hópa þó það sé reyndar mögulegt, þannig að ég gef mér að hér sé um að ræða múgsefjun. Mass Psychosis var vissulega það sem var í gangi 2021 og 2 varðandi það að sprauta hvert einasta kvikindi sem gekk um á tveimur fótum.

  4. Rely on BWER Company for superior weighbridge solutions in Iraq, offering advanced designs, unmatched precision, and tailored services for diverse industrial applications.

Skildu eftir skilaboð