Auglýsingin sem féll í grýttan jarðveg

frettinInnlendarLeave a Comment

Þorgeir Eyjólfsson skrifar:

Margir muna auglýsinguna í Morgunblaðinu í maí 2021 á upphafsvikum Covid bólusetninganna. Í auglýsingunni var almenningur hvattur til að tilkynna aukaverkanir í kjölfar bólusetninga til Lyfjastofnunar eins og vera ber.

Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, var óhress með auglýsinguna af ýmsum ástæðum og þar á meðal að hún taldi upptalningu á hugsanlegum aukaverkunum af völdum bóluefnanna vera „óstaðfestar og jafnvel kolrangar.“

Nú þegar liðin eru þrjú ár frá því auglýsingin birtist er morgunljóst öllum sem til þekkja að listinn í auglýsingunni um hugsanlegar aukaverkanir af völdum bóluefnanna er hvergi nærri tæmandi. Það geta þúsundir Íslendinga vottað sem daglega takast á við eftirmál efnanna á eigin heilsu. Í neðsta boxið um andlát geta fjölskyldur hundruða einstaklinga sem látist hafa fyrir aldur fram hakað.

Birt með góðfúslegu leyfi höfundar.

Skildu eftir skilaboð