Það er margt að meðtaka í umhverfi stjórnmálanna núna fyrir ungt fólk og í gær upplifði ég tilfinningu sem ég held ég hafi aldrei upplifað áður.
Það var eins og öll þjóðin hefði andað léttar á sama tíma þegar fráfarandi forsætisráðherra tilkynnti að ríkisstjórnin væri sprungin.
Fari eins og áætlað er taka nú við spennandi 6 vikur þar sem flokkar munu kynna sín stefnumál. Það sem mikilvægt er að hafa í huga í komandi umræðuþáttum og greinaskrifum er að líta á árangur. Það er auðvelt að lofa öllu fögru, líkt og fráfarandi ríkisstjórn hefur stundað en lítið hefur verið um efnd loforð.
Um helgina fór fram flokksráðsfundur Miðflokksins. Formaður og þingflokksformaður fóru yfir áherslumál flokksins og er ekki annað hægt að segja en að stefna Miðflokksins eigi sterkt erindi við þjóðina í dag.
Líkt og alltaf þá leggur Miðflokkurinn áherslu á skynsemishyggju, að ákvarðanir séu byggðar á staðreyndum og langtímahugsun. Skortur hefur verið á skynsemi í nánast öllum málaflokkum og þar hefði munað um Miðflokkinn.
Það vill gleymast að það var ríkisstjórn Sigmundar Davíðs sem reisti efnahag landsins við eftir hrun, kom með skuldaleiðréttingu og setti á stofn viðbótarlífeyrissparnaðarleiðina sem hjálpar ungu fólki enn þann dag í dag að komast inn á húsnæðismarkaðinn. Árangur efnahagsstjórnar ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs var slíkur að ríkisstjórnir sem tóku við gátu lifað af áhrifum þeirra fram yfir COVID.
Nú erum við komin í svipaða stöðu og árið 2013. Skuldastaða heimilanna versnar, ungt fólk neyðist til að búa lengur í foreldrahúsum, ungar fjölskyldur eru fastar á leigumarkaði, alvarlegar skuldir aukast og fjármunum ríkisins er óskynsamlega sóað.
Í komandi kosningum verður lykilatriði að velja skynsemishyggju fram yfir óraunhæf loforð. Miðflokkurinn mun m.a. leggja áherslu á skynsama hallalausa efnahagsstefnu, aukið framboð lóða til uppbyggingar, skapa umhverfi þar sem allir eigi möguleika á því að eignast heimili, tryggja orkuöryggi með nýjum virkjunum, efla landbúnað og sjávarútveg og ná tökum á landamærum landsins með skynsamari lagasetningu.
Til hamingju Ísland með þetta risastóra tækifæri til breytinga. Nýtum það vel.
Höfundur er varaformaður Freyfaxa, ungliðahreyfingar Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi.
3 Comments on “Þegar öll þjóðin andar léttar”
Kýs Miðflokkinn næst. nó dábt.
Ok Gunnar, þú heldur að Miðflokkurinn sé að fara að gera eitthvað?
Ég held að það séu meiri líkur á því að þú vinnir stóra pottinn í Víkingalottóinu enn að einhver af þessum frímúrrarareglum sé að fara að gera eitthvað skynsamlegt fyrir land og þjóð, þetta er sorgleg staðreynd!
Ég er nú 100% viss um að Miðflokkurinn lúti sömu lögmálum og hinar klíkurnar í utanríkismálum, sem sagt þeir munu þefa þegar kaninn rekur við!
Ef svo er afhverju þurfti auðvaldið að koma Sigmundi frá?